Einu góðu hlutirnir sem ég sé við svampinn er að maður er nær lakkinu og hefur e.t.v. örlítið meiri stjórn á hreyfingunni. Ég reyni yfirleitt alltaf að halda sömu hreyfingum í bæði hreinsi- og bónferli, þ.e.a.s. nota ekki litlar hringlaga hreyfingar nema ég sé að pússa með slípimassa.
En þeim mun meira sem ég spái í þetta þá held ég að þú sért búinn að sannfæra mig. Læt svampinn duga hér í úti í Ameríku, en held ég skipti yfir í kúst á Íslandi
benzboy wrote:Það kemur með Extra Gloss Protection (þetta með gyllta miðanum), sérstaklega hvað perlunina varðar
Get eiginlega ekki verið sammála þessu, finnst endingin á AutoGlym batna lítið þegar maður húðar með Extra Gloss.
Eins og Svezel sagði, fínn árangur sem Autoglym skilar en endingin er allt of lítil.

