Sælir, já þetta er æðislegur bíll, mjög sáttur við hann. Þetta var víst bara random árás, þessi gaur var í sama partýi og ég og var víst eitthvað aðeins of fullur og ég held að hann hafi verið rekinn út, svo tekur hann eitthvað kast fyrir utan og hoppar uppá næsta bíl, sem í þessu tilfelli var minn.
En hann hringdi víst sjálfur á lögguna og viðurkenndi þetta, svo eru þrjú vitni, þannig að þetta blessast allt saman.
en ég sé að tryggingafélagið mitt er með á lista hjá sér Rétting og nýsmíði í Hafnarfirði, er einhver með reynslu af þeim?

