Bílasalar - pappakassar

Hér skal spjalla um BMW.

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby íbbi_ » Tue 10. Nov 2009 18:59

þetta er nú bara svipað og að kalla alla bifvélavirkja skítuga smurapa sem fara ekki úr skónum heima hjá sér og eru með bílavarahlutina uppá matarborðinu.. og löggurnar sem sumir segja allar fífl og svo framvegis..
menn eru náttúrulega bara jafn misjafnir í þessu og þeir eru margir, það eru alveg jafn margir fínir bílasalar þarna og ekki, og svo menn sem teljast klárlega sem fávitar,

i.m.o getur bílasölutengd vinna verið alveg brilliant, hef unnið bæði í bílaumboði, og á bílasölum, og sem bílaáhugamaður finnst mér þetta gífurlega skemmtileg vinna,

það er ansi oft líka sem bílasalar setja að ósk eigandans inn eitthvað kjaftæði, það er ekki starf bílasalans að rökræða við eigendurnar um slíkt, enda væri hann þá að henda frá sér vinnu, salinn er bara miðlari, það er kaupandans að skoða bílinn, og seljandans að segja satt og rétt frá,
þótt að ég sé alveg sammála því að bílasalinn eigi að vera heiðarlegur,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby Bjarki » Wed 11. Nov 2009 10:17

íbbi_ wrote:þetta er nú bara svipað og að kalla alla bifvélavirkja skítuga smurapa sem fara ekki úr skónum heima hjá sér og eru með bílavarahlutina uppá matarborðinu.. og löggurnar sem sumir segja allar fífl og svo framvegis..
menn eru náttúrulega bara jafn misjafnir í þessu og þeir eru margir, það eru alveg jafn margir fínir bílasalar þarna og ekki, og svo menn sem teljast klárlega sem fávitar,


já sammála því enda tók ég það skýrt fram

Bjarki wrote:NB klárlega til góðir bílasalar og þessi gagnrýni á auðvitað ekki við þá.


Hef enn ekkert heyrt frá bílasalanum sem hringdi í mig á laugardaginn nokkrum mínútum áður en ég átti að hitta hann til að skoða bíl.
Hef ekkert hringt í hann til baka enda ekki að missa legvatnið yfir neinum bíl ennþá.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby A.H. » Fri 13. Nov 2009 00:18

íbbi_ wrote:það er ansi oft líka sem bílasalar setja að ósk eigandans inn eitthvað kjaftæði, það er ekki starf bílasalans að rökræða við eigendurnar um slíkt, enda væri hann þá að henda frá sér vinnu, salinn er bara miðlari, það er kaupandans að skoða bílinn, og seljandans að segja satt og rétt frá,
þótt að ég sé alveg sammála því að bílasalinn eigi að vera heiðarlegur,


Þú hefur nú átt ýmis ágætt innlegg á þennan vef, Íbbi. Ég geri þó athugasemd við ofangreinda lýsingu þína á starfi bílasala. Í 15. gr. laga nr. 28/1998 um verslunaratvinnu segir:

,,Bifreiðasali skal í hvívetna leysa störf sín af hendi svo sem góðar viðskiptavenjur bjóða. Hann skal gæta þess að viðskiptamenn hans njóti jafnræðis um upplýsingar, verð og önnur viðskiptakjör, svo og þess að aðila séu eigi settir ólögmætir, ósanngjarnir eða óeðlilegir skilmálar í samningum. Bifreiðasali ber ábyrgð á verkum starfsmanna sinna við sölu ökutækja sem væru þau verk hans sjálfs. Bifreiðasali skal, áður en gengið er frá afsali notaðs ökutækis, greina kaupanda með sannanlegum hætti frá þeim rétti hans að láta óháðan aðila meta ástand ökutækis, svo sem faggilta skoðunarstofu eða faggilt skoðunarverkstæði. Kostnað við slíkt mat skal kaupandi greiða nema um annað verði samið.
Bifreiðasali skal með áberandi hætti vekja athygli á gjaldskrá fyrir söluþóknun, þar á meðal þegar um skipti á bifreiðum er að ræða. Einnig er skylt að leyfisbréf vegna starfseminnar liggi frammi á starfsstöð.
Hafi bifreiðasali ástæðu til að ætla að ástandi ökutækis sé ábótavant ber honum að vekja athygli kaupanda á þeim annmarka."


Í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 69/1994 um sölu notaðra ökutækja var að finna samhljóða ákvæði. Þegar lögin um verslunaratvinnu voru síðar samþykkt var um rök fyrir 15. gr. vísað til athugasemda með frumvarpi til laga nr. 69/1994. Þar sagði m.a. um þetta ákvæði:

,,Í þessari grein felst almennt ákvæði um skyldur bifreiðasala gagnvart viðskiptamönnum sínum. Hafa ber í huga að bifreiðasali er í þjónustu beggja aðila, seljanda og kaupanda, og er honum skylt að gæta hagsmuna þeirra beggja við samningsgerð eins og kostur er."
Image
Núna: Z3.
Áður: E21, E30, E36, E38.
User avatar
A.H.
Kassabílstjóri
 
Posts: 151
Joined: Sat 25. Oct 2003 19:40
Location: Grafarvogur

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests