Aron Fridrik wrote:
DABBI SIG wrote:
Jæja, við vitum nú allir að það er nánast ekkert að marka BGS reiknivélina þegar bílar eru orðnir eldri en 3 ára. En núna tók einhver snillingur sig til og skrifaði heila grein um þetta dæmi sem ég tók um þessa 320 og 330 bíla og fáránlega verðmuninn þar á milli.
Þetta var nú alveg til að toppa allt að einhver pera á mogganum skrifar forsíðugrein í bílablaðið í dag og reynir að útskýra af hverju 330 ætti að vera ódýrari en 320. Ekki nóg með að þessi reiknivél sé að koma ranghugmyndum í fólk þá þarf að koma þessu á framfæri í Morgunblaðinu!! Alveg hreint fáranlegt að reyna að tyggja þetta í fólk.
Eina viturlega í þessari grein sem kom fram var að jafnvel þó að 330-bíllinn væri með stærri vél og þ.a.l. væntanlega aðeins eyðslufrekari þá væri heildar kostnaðarmunur við rekstur á milli 320 og 330 á ársgrundvelli ekki nema einhver 70 þús kall!
Sá sem skrifar þetta er klárlega ekki í sambandi við raunverulegt gangverð á bílum.
talaðu bara við hann hérna.. Bebecar skrifaði greinina

Greinin snýst um það að bílar með stærri vélar eru oft ódýrari í kaupum en "vísitölubílarnir" vegna þess að fólk heldur að það muni meira um bensínkostnaðinn - það getur þessvegna borgað sig að kaupa dýrari gerðina, ef hann er 200-300 þús ódýrari - tala nú ekki um ef það er meira sem munar, því bensínkostnaðurinn er ekki meiri en sem nemur þessum 70 þúsundum. Ég er að skoða þarna þróun sem er sú sama og í Bretlandi.
Ég gætti þess svo sérstaklega að nefna ekki hvert verðmatið er á BGS, aðeins mismunin, og þá staðreynd að þetta snýst við eftir því sem bílarnir eru eldri (og í dýrari flokk) - það er því ekkert fullyrt um raunverulegt gagnverð á bílum.
Ég get ekki fullyrt að útreikningar BGS séu rangir í þessu tilfelli þar sem ég er ekki að leggja neitt mat á það. Auk þess yrðu þeir að fá að svara fyrir sig ef ég gerði það og það gæti þvert á móti staðfest mikil afföll bíla af þessu tagi.
Reyndar, þá held ég að margir séu í algjörri afneitun í bílverði - almennt séð.