já íbbi það er rétt, þetta er gamli þinn, og jááá hann var svaaaakalegur...finnst mjög leiðinlegt hvernig komið er fyrir honum, en ég hef bara hvorki aðstöðu né peninga til að gera þennan bíl upp... þá þyrfti að fara í mótorinn á honum, og fá nokkra hluti í mótorinn...og einnig þyrfti einhverja nýja parta í innréttingu.. brotnir viðarlistar, vantar hátalara og fleira...það er búið að fara illa með þennan eðalgrip og ég er í því ástandi að mig vantar ýmislegt úr honum til að gera við bláa bílinn minn, og ég ætla mér bara að nýta það, og þá líklegast að selja parta úr þessum. Ætla mér sko ekki að pressa þennann fyrr en allt er farið úr honum.... Þetta er bíll með sögu að mínu mati, og ég vona að sú saga lifi enn með pörtum úr honum
