Hækkun sekta! AFTUR

Hér skal spjalla um BMW.

Postby bebecar » Sat 16. Jun 2007 13:45

Þórir wrote:Mér finnst þetta út í hött. Algerlega fáránlegt. Á íslandi er þriðjungur ökumanna sektaður árlega og ekkert breytist. Lausnin felst ekki í að sekta hærra eða meira. Þetta er ekki lausnin.

Athugið það að þetta er það sem við fáum frá þessum vitleysingjum í umferðarráði, þetta er eina svar þeirra við þeim djöfli sem þeir telja hraðakstur vera.

Ohhh, ég verð svo pirraður þegar ég hugsa um sektapólitík á Íslandi! :evil:


Það er til haugur af DATA sem sýnir alltaf það sama... eina leiðin til að draga úr hraðakstursbrotum er að hafa löggæsluna sýnilegri, fleiri löggur á götuna og eftirlit.

Harðari sektir virðast bara almennt gera mjög lítið.

Umferðarráð - það er náttúrulega skelfilegt að ekki sé reynt að horfa til skynsamlegri lausna á þessum vanda heldur alltaf farið beint í plástrana :(

Annað sambærilegt dæmi það eru hraðamyndavélarnar í UK. Tryggingafélögin þar eru núna að hætta að nota punktakerfi ökumanna sem viðmið fyrir tryggingar (færri punktar = lægri iðgjöld) því það eru allir með punkta og því er punktakerfið ómarktækt í dag! Fullt af venjulegu fólki sem í kerfum tryggingafélagana er skráð sem einhverjir ökunýðingar...

Þetta er augljóslega ekki að virka þetta system þar og afhverju ætti það þá að virka heima?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby IceDev » Sat 16. Jun 2007 15:14

Svo má ekki gleyma átakinu sem var tekið í fyrra

STOPP!

Sénsinn að það hafi spornað við einhverju dauðaslysi í ár. Þetta hefur einungis verið mjög farsælt ár hvað varðar alvarleg slys og hafa einungis dáið 2 það sem liðið hefur af árinu

Það er auðvitað hrikalegt að missa fólk í alvarlegum slysum en ég vil halda að þetta átak sem var í fyrra hafi lítil sem engin áhrif.

Það verðu náttúrulega ömurlegt þegar að þeir munu svo hrósa þessu Stopp-herferð sinni sem lækkun á alvarlegum slysum á Íslandi. Þetta er ekki svo einfalt að fá fólk til að skrifa nafnið sitt undir eitthvað plagg. Slysin taka afar takmarkað mat af bleki.

Flest slys verða til af aðstæðum sem að ökumaður fær ekki stjórnað og hefur gert það alveg frá því að bílar voru fundnir upp
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Postby BMWaff » Sat 16. Jun 2007 17:23

Mér finnst alltilag að hækka en finnst að það ætti frekar að margfaldast með meiri hraða... Þannig að ef þú ert á 10 yfir hámarki er það 5000, 20-30 20.000, 40-60 >... eða þið skiljið... mér finnst 100-110 þar sem er 90 ekkert mál en kanzki þegar menn eru komnir í 140-170 >... Löggan á höfuðborgarsvæðinu keyrir nú sjaldnast á akkúrat hámarkshraða... Ætti þá að sekta hana
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby Stanky » Sun 17. Jun 2007 00:46

háar sektir laga ekkert hraðakstur.

haha.
idiots.
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests