by Raggi M5 » Wed 11. Jun 2003 17:02
afhverju ekki bara að slást í hóp með Live2Cruize þegar allir eru komnir, mér lýst mjög vel á dagskránna hjá þeim, maður vill vera í báðum hópunum afhverju ekki bara að sameina þá báða og halda heljarinnar helgi, nema sumir eru kannski á móti því ég veit ekki, en þetta er allavega planið hjá þeim.
Föstudagurinn 13. júní:
12:00 L2C hittist á KFC planinu í Mosfellsbæ. Lagt verður af stað tímanlega kl 12:00.
Stoppað verður á Blönduósi á leiðinni.
Við komuna til Akureyrar munum við stoppa og þrífa bílana á Skeljungsplaninu fyrir þá sem vilja og taka svo einn stuttan hring í gegnum bæinn.
20:00 Samkoma á Glerártorgarplaninu (Kringlan á Akureyri )
ca 21:00 verður haldið niðrað Sambíóunum og bílunum lagt á torginu og rúntinum.
22:00 Forsýning á 2Fast2Furious í boði Sambíóanna, Live2Cruize og Bílaklúbbs Akureyrar, og formleg opnun Bíladaga 2003.
24:00 L2C Party á Dátanum, opið fyrir alla sem hafa náð 18 ára aldri. Hugmyndin er að allir borgi 500 kr og fái þá frían bjór meðan birgðir endast. Rukkað verður á KFC planinu og á samkomunni fyrir norðan, þannig að menn eru beðnir um að tala við okkur eða strákana fyrir norðan.
Laugardagurinn 14. júní:
16:00 Olís Götuspyrnan við Tryggvabraut
21:00 L2C grillveisla í Kjarnaskógi þar sem allir mæta með einnota grill og mat fyrir sjálfa sig. Endilega sem flestir að láta sjá sig. Spurning að hittast á Glerártorginu um 20:00 og halda í halarófu inní Kjarnaskóg.
Sunnudagurinn 15. júní:
14:00 Burn-out keppni BA
15:00 Vatnacross sýning í boði Kappakstursklúbb Akureyrar (KKA)
20:00 Mótorcross klifur í boði KKA
Mánudagurinn 16. júní:
20:00 Auto-X á ÚA planinu
Þriðjudagurinn 17. júní:
10:00 Bílasýning BA og Bíladögum 2003 slitið
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......