Já P.Samúelsson á víst að veita mjög góða þjónustu! Hef aldrei átt Toyotu sjálfur þannig að ég veit það ekki af eigin reynslu!
Ég held að það sem spili líka mikið inní þetta hjá P.Samúelssyni sé markaðssetningin! Það eru ekkert eðlilegar auglýsingaherferðir sem fara í gang í hvert skipti sem það kemur ný Toyota á markaðinn!
Og hver man ekki eftir stóru sýningunni sem var í Laugardalshöllinni þegar Corollan kom á markað, ca '96, með hringlóttu framljósin! Þeir þvílíkt dásömuðu þennan bíl!
Sportútgáfan var með 6 gíra kassa og 1,3 vél 85 hö, eða eitthvað álíka. Þeir seldu ungu fólki slatta af þessum bílum, þó það ætti það á hættu að afi gamli á 1,6 lítra sjálfskiptu rollunni sinni stingi það af á næstu ljósum
Þetta fannst mér alveg magnað á sínum tíma!!!!!!