O.Johnson wrote:
þegar ég kem inn í þennan ljóta volvo og sé að ekkert er á mælinum, þá trillist ég vegna þass að hann var búinn að plata það upp úr mér á hvaða hraða ég var (löggan gerir það ef ekki næst að læsa töluna inn í mælinn). Ég blóta löggu helvítinu og hann hótar að sekta mig fyrir það. Þá fer ég bara út úr bílnum, en nei nei, þarf anskotinn ekki að koma út og snúa mig niður. Hann sleppti mér þegar hann var búinn að láta mig lofa að vera þægur og koma inn í bíl.

Ég held að þú sért nú gott dæmi um þá hnignun sem á sér stað hér.
Í fyrsta lagi ertu ekki nógu mikill maður til að sætta þig við það að hafa verið staðinn að lögbroti, í öðru lagi varstu nógu mikill sauður til að segja þeim að þú varst á ólöglegum hraða og í þriðja lagi þá "tryllistu" og ert með uppsteit við lögregluna sem er bara í vinnunni! Í fjórða lagi þá áttir þú þetta líklegast skilið enda búin að safna nógu mörgum punktum án þess að láta segjast.
Hvað varðar okkur gömlu karlana, þá hefði maður haft gott af þessu á sínum tíma. En ég fullyrði að engum okkar hefði nokkrun tímann dottið í hug að sína lögreglunni dónaskap þegar hún stendur okkur að verki.
Og við erum ekki of gamlir til að mega kommenta á þetta. Við fengum líka bráðabirgðaskírteini en það þjónaði hinsvegar engum tilgangi, maður fékk hvort eð er fullnaðarskírteini eftir tvö ár.
Þið hljótið að sjá að markmiðið sé að fá unga ökumenn til að halda sig á mottunni meðan þeir öðlast nægjanlega reynslu.