by íbbi_ » Mon 02. Mar 2009 22:12
ekkert olíuverk í svona kagga,
það sem ég hef rekið mig á varðandi þessa bíla, eru gífurleg túrbo vandræði, bínurnar sjálfar að fara, sprengjandi intercoolerhosur og flr, spíssar, gangtruflanir, E46style hleðsluljós jú en þar er ekki grútabrennaranum um að kenna, seldi töluvert af nemum og flr í "samrásainnsprautunina" í þeim þegar ég var að brasa með varahluti frá bosch eins og sumir muna eftir,
það sem að hefur samt setið mest í mér varðandi t.d þær bilanir sem ég nefndi, er hversu gríðarlega kostnaðasamar þær hafa verið,
ég held í fullri hreinskilni að ég fengi mér frekar 318i, -->mín<-- reynsla er sú að þeir séu einfaldlega ódýrari í rekstri til langs tíma litið. 320d er náttúrulega afar mikil snilld í akstri, en ef hann rukkar um miklu feitari þjónustukosntað þá er eldsneytiskostnaðurinn varla að gera nógu haldbæran mun, þar sem að dieselolían er nú ennþá allavega töluvert dýrari en bensín, og s.k minni reynslu eru 316/18 E46 bílarnir mjög fínir bara varðandi eyðslu,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll