Ætli maður noti hann ekki bara til að keyra í vinnuna
Kannski maður splæsi í koppa á kaggann, hann er ekki sérlega fagur á svarta stálinu
En ég lenti einmitt í veseni að ná álinu undan að framan, endaði með því að keyra á verkstæði með ekkert grip á framdekkjunum, sem var ekkert sérlega gaman. Þeir þurftu einhvert ægilegt átaksskaft til að ná boltunum, loftið hafði ekkert í þetta.
En það er að koma að því að skipta um tímareim, kannski maður geri eitthvað stuð í leiðinni.