Alpina wrote:
íbbi_ wrote:
styrmir veistu til eþss að svona búnaður sé í notkun í 318/360 magnum, mopar
dauðlangar sveran pikka og keyra hann á þessu,
Það eina sem ég hef heyrt er að HEMI Durango .. 2 stk hafa brotið stimpilstangir .. mjög fljótlga eftir að METAN fór á þá
Ekki svo ég viti, það er æskilegt að bílar séu komnir með obd tengi svo að hægt sé að breyta þeim með þeim kerfum sem menn nota í dag,
ef ég man rétt þá kemur það 96', það þarf að vera hægt að lesa af súrefnisskynjurum og fá púlsmerki frá kveikju
ég veit að það er hægt að fá kerfi á blöndungsbíla en það þarf að sérpanta svoleiðis, ég hef ekki enn séð svoleiðis í bíl hér á landi.
þetta hemi mál er afar leiðinlegt. við breyttum öðrum bílnum, ef ég man rétt þá var hann búinn að keyra 300 km þegar þetta gerist,
bíllinn fór í kistufell og vélin rifin, þeir höfðu ekkert sem benti til þess að þetta væri metaninu að kenna en auðvitað er mjög grunsamlegt að þetta gerist
rétt eftir breytingu, líklegasta skýringin var að það hefði verið komin málmþreyta í stöngina eða eithver steypugalli.
bíllinn kom svo aftur eftir vélaruptektina og metankerfinu var raðað saman aftur og veit ekki nema að það hafi endað á besta veg.
ég veit ekki hvort að íbbi muni eftir því en þegar ég var að vinna í Ræsi sennilega í kringum 2007 þá tók ég á móti nýlegum durango með 5,7 hemi
sem að hafði stimplað sig út í kömbunum. þar var talið að um steypugalla væri að ræða svo að ég veit ekki hvort að þetta er eithvað viðurkennt vandamál
með þessar vélar eða bara hrein tilviljun.
eina leiðin sem að ég sé til að eyðilegga vél með metani á svo stuttum tíma er að keyra hana alltof "lean" en þá myndi ég gera ráð fyrir að allt myndi fara í steik ofar
í mótornum frekar en í kjallaranum.
hvað hinn durangoinn varðar þekki ég það lítið, en sagan sem ég heyrði var að það hefði eithver með litla reynslu breytt honum og stillt hann sama og ekkert og sent
bílstjórann út að keyra, þá væntanlega alltof "lean" á gasi en það er nú bara saga sem ég heyrði.
kv. Styrmir