Nökkvi wrote:
Nóg af bulli um hvernig á að tjakka bíl upp. Ég er að spá í að reyna að svara þér.
Ég átti E36 og setti 17" undir hann og var með 245/40R17 að aftan sem er orginal stærð sem kemur á M3. Þar er afturbrettið hins vegar eitthvað öðruvísi en á venjulegu bílunum svo dekkið rakst aðeins brettið hjá mér. Til að laga þetta eru til ýmsar leiðir. Vinsælt hér á meðal meðlima er að rúlla brettin. Þetta hefur hins vegar í för með sér að hætt er við lakkið skemmist. Þegar ég var að standa í þessu vissi ég reyndar ekkert um rúllun á brettum. Þar sem dekkin rákust mjög lítið í hjá mér fór ég þá leið að taka slípirokk og taka aðeins innan úr brettinu. Svo bara grunnaði ég og gekk frá. Var alveg til friðs eftir það.
Að framan var ég með Michelin Pilot Sport eitthvað af stærðinni 225/45R17. Þetta er líka orginla M3 stærð. Bíllinn lét hræðilega í hjólförum. Maður þurfti virkilega að halda í stýrið á Miklubrautinni svo bíllinn væri ekki út um allt. Þetta komst þó upp í vana og ég keyrði þessi dekk út. Voru reyndar fljót að slitna upp á hliðunum út af þessu. Ákvað að kaupa næst 215/45R17 sem mig minnir að hafi verið frá Hankook og bíllinn varð bara allt annar. Ég hef ekki trú á að þessi eini sentimetri hafi breytt öllu, frekar að nýju dekkin hafi verið mýkri eða eitthvað þannig.
Hvað varðar brotna gorma er þetta mjög þekkt vandamál í BMW. Ég er ný búinn að skipta um brotna afturgorma í mínum E46 og það brotnuðu afturgormar í þessum E36 sem ég átti. Sem betur fer er mjög lítið mál að skipta um þetta. Getur fundið fullt af leiðbeiningum á netinu.
Vona að þetta hjálpi meira en þetta bull um að tjakka upp bílinn!
Þakka þér kærlega fyrir, Nökkvi

Annars væri ég til í að fá upplýsingar um hvar væri henntugast að kaupa gorm?