
Zed III wrote:þessum verður skutlað uppá verkstæði á eftir til mats.
Hvaða bull er þetta með að það sé bara bílaleigubíll í 5 daga? Krefst maður þess ekki að hafa bílinn lengur en þetta?
Stórlega efast að það verði búið að laga bílinn á mánudaginn.
Myndir annars komnar í þráðinn hjá mér : http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=38760&start=165
Danni wrote:Zed III wrote:þessum verður skutlað uppá verkstæði á eftir til mats.
Hvaða bull er þetta með að það sé bara bílaleigubíll í 5 daga? Krefst maður þess ekki að hafa bílinn lengur en þetta?
Stórlega efast að það verði búið að laga bílinn á mánudaginn.
Myndir annars komnar í þráðinn hjá mér : http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=38760&start=165
Þú átt að fá bílaleigubíl á meðan viðgerð stendur yfir, en bara 5 daga ef þú ert í kaskó og varst dæmdur í órétti.

A.H. wrote:Varðandi rétt til bílaleigubíls þegar menn eru í rétti:
Tryggingafélög reyna almennt að halda þessum kostnaði sem öðrum niðri. Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum hefur hins vegar í ýmsum málum talið að réttur til bílaleigubíls geti náð til lengri tíma en fimm daga, enda er hvergi meitlað í stein að menn geti ekki öðlast ríkari rétt á hendur vátryggingafélagi vegna afnotamissis. Man í fljótu bragði eftir einu máli þar sem úrskurðarnefndin taldi að aðili ætti rétt á bílaleigubíl í rúmlega 20 daga.
Ef menn eru í órétti og ætla að sækja bætur í kaskó þá er algengt að tryggingafélög takmarki í skilmálum sínum bótarétt vegna afnotamissis.
Gangi þér vel.


Users browsing this forum: No registered users and 12 guests