Varðandi þetta inspection dót allt held ég að það sé alveg á hreinu að ef maður er á nýlegri bíl að þá held ég að það marborgi sig að láta gera þetta af fagmanni þar sem ég myndi sjálfur vera tilbúinn að borga meiri pen. fyrir bíl sem hefði pottþétta bók (í það minnsta frá nýjasta eiganda) en ég myndi gera fyrir bíl sem ég vissi ekkert um. En það er kannski gamlar fréttir enda búið að ræða mikið einmitt um þetta.
Annars hef ég aðgang að gífurlega færum bifvélavirkja sem rekur sitt eigið verkstæði í aukatíma sínum og ekki skemmir að hann vann fulltime við að gera við bamba hjá þremur bmw umboðum hérna heima og fór meðal annars út til DE til að fara læra á BMW. Persónulega fannst mér það gæðastimpill á BMW að fyrrgreindur félagi minn hefur átt BMW sem aðalbíl síðustu 20 ár. Mér finnst alltaf traustvekjandi þegar maður sem hefur atvinnu sínu af því að gera við tiltekna bíla, keyrir ekki á neinu öðru.