Montoya á leið til McLaren???

Hér skal spjalla um BMW.

Postby iar » Tue 18. Nov 2003 10:47

Ég held að JPM eigi eftir að gera góða hluti hvar sem hann er og því mikill missir af honum hjá Williams. Skrítið samt að hann komi til með að keppa næsta ár.

Hlýtur að vera hálf vandræðalegt fyrir bæði hann og liðið, t.d. ef hann klúðrar einhverju eða hleypir Raikonen of auðveldlega framhjá sér eða ámóta.

Nú er bara spurning hver kemur í staðinn. Væri ekki bara málið að næla í MS svo þeir geti nú keppt saman eins og eitt tímabil. ;-) Ekki það samt að mér finnst litli bróðir alveg hundleiðinlegur, sérstaklega þegar hann fer að "væla" og nöldra sem hann gerir að mínu mati of mikið af. JPM aftur á móti er fínn og á eftir að batna mikið, slípast aðeins til.

En varðandi að halda með Williams-BMW þá breytist það ekkert hjá mér. Go BMW! 8)
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby Iceman » Tue 18. Nov 2003 10:50

Hefði verið betra að losa sig við ralf og borga JPM meira! Ráða svo Alonso!
Iceman
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 89
Joined: Tue 25. Mar 2003 13:58
Location: Kópavogur

Postby bebecar » Tue 18. Nov 2003 10:53

Ég held að Williams liðið láti Montoya fara um leið og þeir finna hæfann arftaka, það hefur gerst oft áður og menn sitja nánast aldrei út samningstímabilið ef það er ljóst að þeir eru að fara til aðal keppninautar.

Ég veðja á að Williams liðið næli sér í Alonso sem er afskaplega fær ökumaður. það er alveg á hreinu að MS klárir sinn keppnisferil hjá Ferrari.

Ég held því miður að það séu ekki margir frambærilegri og hugsanlega á lausu. Þetta er mikið tap fyrir Williams en að sama skapi held ég að þetta sé afleikur fyrir Montoya, ég held að Williams liðið muni sigla enn lengra fram úr McLaren, það eru nefnilega engin teikn á lofti að þeir séu að bæta sig nógu mikið til að komast í slaginn af einhverri alvöru.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Jss » Tue 18. Nov 2003 11:03

BMW tekur heimsmeistaratitil bílsmiða á komandi árum. :roll:
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby morgvin » Tue 18. Nov 2003 20:34

Við fáum einhverja færa ofur kempu og hendum þessu brazza rusli sem kann bara að segja og endur taka tvö orð "you know" .
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.
User avatar
morgvin
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Location: Reykjavík(Selás)

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 50 guests