_Halli_ wrote:
Gerði það sama, flutti mig frá VÍS yfir í Sjóvá ... VÍS ætluðu að rukka mig um 86.000 kr. fyrir að tryggja (ekki kaskó auðvitað) 17 ára gamlan 318.
Ég hringdi og spurði hvort þetta væri ekki full dýrt, þjónustufulltrúinn var sammála því en bauðst ekki til að koma neitt til móts við mig í þeim málum. Var búinn seint í vinnunni þann dag svo sölumaður hjá Sjóvá bauðst til að hitta mig eftir kvöldmat, opnaði fyrir mig húsið og allir græddu þann dag.
S.s. samkvæmt þessari röksemdarfærslu getur gamall 318 valdið öðrum minni skaða en nýlegur 318?
Þegar þú kaupir tryggingu á bílinn þinn (skyldutrygginguna) ertu að kaupa tryggingu á tjón sem þú veldur öðrum.
Dýr kaskó á svona bíl væri hinsvegar annað mál.