Hvaða Olíu notið þið ??

Hér skal spjalla um BMW.

Postby Bjarki » Thu 21. Nov 2002 11:07

Ég pældi mikið í því hvaða olíu ég ætti að fá mér þegar ég smurði bílinn í haust. Ég endaði á að kaupa Delphi olíu og á brúsanum stóð BMW special oil, Stilling er að selja þetta og líterinn kostar e-ð um 650 kr. Ég hef mælt olíuna 2x síðan ég setti þessa olíu á hann og hann hefur ekki brennt neinu sjáanlegu. Það skiptir náttúrlega miklu máli hvaða líterinn kostar þegar bílar eru að taka 6 lítra eins og minn. Var að hugsa um einhverja "flotta" olíu en hætti við það, týmdi ekki að eyða 7000+ í olíu.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Gummi » Thu 21. Nov 2002 14:49

Mobil 1 kostaði rúmar 800kr þegar Olís var með hana en þegar esso tók við henni þá kostar lítrinn miklu meira. Er þetta ekki farið að jaðra við einokun.
Gummi
E-46 320i '00
Honda CBR 1000F '88
Gummi
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 99
Joined: Mon 02. Sep 2002 00:39

Postby DXERON » Thu 21. Nov 2002 21:18

er ekki esso með mobil 1 literinn hærra en olís?
þótt þeir séu komnir með umboðið?
...
Dabbi Xeron
BMW 323i '82 E21 (Seldur)
Jeep Cherokee Laredo 38" Blár(Heitir Blámi)
Colt '91
User avatar
DXERON
Kassabílstjóri
 
Posts: 164
Joined: Tue 03. Sep 2002 22:19
Location: Mosó

Postby Dr. E31 » Thu 21. Nov 2002 21:39

Líterinn af Mobil 1 kostar 1405kr hjá Esso, og Mobil 1 á alltaf að vera dýrasta olían á markaðnum (hérna heima a.m.k) ef einhver önnur olía fer yfir það verð, þá hækkar Mobil 1. Þannig virkar það nú.
User avatar
Dr. E31
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1898
Joined: Wed 11. Sep 2002 01:19
Location: Reykjavík

Postby DXERON » Fri 22. Nov 2002 19:42

líterinn af visco 7000 fe 0w30 er á yfir 1600kr... .
þetta er örugglega ein af dyrustu olíunum á íslandi....
þetta er notað á bíla með langtímabúnaði...
Dabbi Xeron
BMW 323i '82 E21 (Seldur)
Jeep Cherokee Laredo 38" Blár(Heitir Blámi)
Colt '91
User avatar
DXERON
Kassabílstjóri
 
Posts: 164
Joined: Tue 03. Sep 2002 22:19
Location: Mosó

Postby flamatron » Sat 23. Nov 2002 22:30

Ég notaði Visco 7000 0-40w, á fiat uno turboinn..hún var soldið dýr. :x
Tómas
BMW 325ic '95
Isuzu Trooper '99
User avatar
flamatron
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1387
Joined: Sat 31. Aug 2002 17:41

Postby Propane » Wed 27. Nov 2002 13:31

Það er mælt með því að nota 0-5 - 40 olíu á BMW, Gerviolíu, hún endist helmingi lengur en hinar. Esso er með Ultron 5-40W og einnig Ultron-Eco- 0-40W, 0 olíurnar eiga vist að stuðla að minni bensíneyðslu. 0-5 gerviolíur minnka slit á vélunum og minnka viðnám, eru fljótari að dreifast um alla vélina og kemur nánast hrein út við olíuskipti :)
Don't Follow me, you won't make it.
Stebbi. BMW 523iA E39 (áður 318iA og 518i ss)
User avatar
Propane
Kassabílstjóri
 
Posts: 175
Joined: Mon 23. Sep 2002 13:06
Location: Iceland

Postby Guest » Wed 04. Dec 2002 23:44

Prolong umboðið á Íslandi.

Ég er hér til að svara spurningu um hvort það sé óhætt að nota Prolong smurmeðferð á BMW vélar og gírkassa! Prolong er náttúrulegt smurefni og er með öllu hættulaust til notkunar á hreifiparta og hefur ekki áhrif á ábyrgðir bílaframleiðenda. Staðreyndin er sú að smurolíur hafa aldrei verið betri en nú,en smurolíur hafa sínar takmarkanir og við mikið álag og núning skapast mikill hiti og þensla málma sem veldur meira sliti og endar með vélarbilunum. Smurolíur þynnast við hátt hitastig og forðast hita og álagsfleti.

Grunnur Prolong efnanna er uppsettur af hreinum olíubasa 10-15 Cst og inniheldur ekki plastefni, PTFE resins (Teflon), grahite, molybdenum disulfide, eða önnur efni sem geta verið skaðleg og byggast upp í vélum. Prolong efnabasinn er framleiddur skv bestu fáanlegum stöðlum sem nefnast CP´s og er útgefinn af Lubrasoil sem er með fleiri hundruð heimsleyfi. Þeir gefa út staðla og framleiða gæðaefni í olíur fyrir stærstu olíuframleiðendur heims

Prolong hefur einnig heimsleyfi á efni sem nefnist AFMT sem stendur fyrir Anti-Friction Metal Treatment. Eiginleiki þessarar vísindalegu blönduðu málmmeðferðar efnasamsetningu er að hún vinnur á efna molecul rafeindum málma og leitar á málmfleti og er sérhönnuð til að blandast við vélarolíur og önnur bætiefni af þessu tagi, hvort sem sé um að ræða náttúruolíur eða gerviolíur. Prolong vinnur öfugt við smurolíur, í stað þess að forðast hita, sækir Prolong í hann og heldur niðri hita og þenslu málma, Þessa (Patented) vöru, skal ekki bera saman við venjuleg "bætiefni". Prolong þolir háan þrýsting og hátt hitastig. Minnkar mótstöðu, slit og veitir smurningu og smurvörn við ræsingar véla.

Gefur hámarks tækja og vélarlíf og er eldsneytis og orkusparandi.

Hvers vegna að nota Prolong AFMT tæknina ?
Prolong minnkar núning og hita í vélum. Bifreiðar eru fjárfesting sem vert er að hugsa um.

Hver er munurinn á öðrum olíubætiefnum og Prolong AFMT málmmeðferð?
Í stað þess að reyna að bæta olíuna með bætiefnasamsetningu er Prolong formúlan hönnuð með það í huga að ganga í efnasamband við málmfleti og vélarparta með (molecular) efnasamsetningu, sem skapar einstaka vörn gegn hita og núningi. Prolong bindur sig við málmyfirborð sem ver málminn.

Er hægt að nota Prolong vélameðferð í hvaða vél sem er ?
Mun Prolong hafa áhrif á bifreiðaábyrgðir ?
Prolong vélameðferð hefur ekki áhrif á vélaábyrgðir og er óhætt að nota Prolong á gamlar sem nýjar vélar bensín eða dísil, ATH skal að tilkeira vélar 5000 Km áður en Prolong er sett á. Efnið er sambærilegt við petroleum og synthetic vélaolíur. Prolong vörurnar hafa ekki áhrif á ábyrgðir framleiðanda.

Hversu oft skal nota Prlong vélameðferð á bílvélar ?
Við fyrstu meðferð skal nota 6 til 10% magn á móti olíu á vél sem er hægt að framkvæma við olíuskipti. Við hver olíuskipti eftir það er mælt með 5% magni á móti olíu til að halda hámarks vélarvörn. farið ávallt eftir leiðbeiningum framleiðanda um olíuskipti.

Árangur í Íslensku mótorsporti með Prolong smurefnunum eru með ólíkindum og er Prolong orðið eitt mest notaða smurefnið á Íslandi í þeim efnum. Við erum með mörg virtustu fyrirtæki landsins sem notendur á Prolong smurefnum svo sem: Samskip, Eimskip, Vélamiðstöð RVK, Áhaldahús Kópavogs, Hampiðjan, Ísal, Íslenska Járnblendifélagið, Sementsverksmiðjan, Steinullarverksmiðjan, Sorpa, Hringrás endurvinnsla, GP kranar, Vífilfell og mörg önnur ánægð fyrirtæki.

Verið velkominn á vef okkar www.kbergmann.com

Kveðja
Kristján Bergmann 8) 8)
Guest
 

Postby Guest » Thu 05. Dec 2002 01:21

Varðandi þessi olíumál, þá hef ég ekki með sérmenntun á véltæknisviði en hef ágætis reynslu af mikilli notkun bílvéla, ég hef átt fleiri bíla en ég hef tölu á og starfa á vinnustað þar sem mikill fjöldi bíla er í stanzlausri notkun, mín niðurstaða er sú að á allar almennar bílvélar sem ekki flokkast undir "high performance" sé einna farsælast að nota ódýrar náttúruolíur, (non synthetic) og skipta oft !
Ég hef einhvernvegin ekki trú á því að í okkar loftslagi sé vélum hollt að nota olíur í 10.000 km eða meira þegar um er að ræða almenna notkun (til og frá vinnu í Reykjavík), þó að þessar dýru olíur séu gefnar upp fyrir slíkt, sérstaklega á vélum sem eitthvað eru farnar að slitna, þá erum við með auknar líkur á að eldsneytissmit í smurolíuna geti átt sér stað, sérstaklega þegar við erum að keyra stuttar vegalengdir í einu þar sem hreyfillinn er nýbúinn að ná eðlilegum vinnsluhita þegar á leiðarenda er komið. Á þeim vinnustað sem ég starfa eru bílar með stórar vélar og keyrðar undir gríðar miklu álagi, oft kaldar og oft í stuttar vegalengir, þar eru notaðar ódýrar olíur frá Shell, og hafa verið notaðar í áratugi, það heyrir til algerar undantekningar ef að vél er að hrynja eftir óeðlilega litla notkun og ég geng svo langt að segja að það varla þekkist !! Hinsvegar er ákaflega vel passað upp á það að olíuskipti fari fram á 5000 km. fresti. Sjálfur hef ég hinsvega haft nokkra trú á að Militec sé nokkuð magnað íblöndunarefni og hef notað það sjálfur með ágætri reynslu, þó ég hafi að sjálfsögðu engar vísindalegar staðreyndir þar að baki. Ég legg áherslu á að ég er aðeins að tala samkvæmt minni eigin tilfinningu sem neytandi en ekki sem sérfræðingur,
beztur kveðjur,
zx
p.s. endilega leiðréttið mig ef ykkur finnst ég vera að bulla !
Guest
 

Postby zx » Thu 05. Dec 2002 01:25

síðasta reply kom semsagt frá mér, var ekki loggaður inn 8)
zx
Kassabílstjóri
 
Posts: 129
Joined: Sun 22. Sep 2002 16:11
Location: Garðabær

olíur....

Postby Elli Valur » Sat 07. Dec 2002 20:04

ég nota alltaf mobil 1 og fullan brúsa af militek á mina bimma :D
TOYOTA Hiace
KAWASAKI KXF 250
Elli Valur
Kassabílstjóri
 
Posts: 137
Joined: Sat 07. Dec 2002 19:50
Location: allavega ekki oní huddinu á BMW

Postby sh4rk » Sun 08. Dec 2002 22:30

Ég nota 10 w40 esso minnir mig að það heitir.
Og það var olían sem var mælt með þegar ég gerði við mótorinn.
User avatar
sh4rk
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2837
Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Location: Reykjavík

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 18 guests