Gott og vel - ef þú ferð alltaf eftir lögunum færðu auðvitað ekki sekt. Það sér náttúrulega hver heilvita maður. Það sem ég á hinsvegar við er það að ef þú ert blikkaður og kveikir ljósin er ekki um neitt vandamál að ræða lengur og þar af leiðandi ekki ástæða til refsingar. Það að vera ekki með einhverja skriflega staðfestingu á því að þú sért með ökuréttindi (sem þeir hringja hvort sem er alltaf og kanna) er heldur ekki eitthvað sem er raunverulega stórmál.
S.s. þetta er í raun ekki annað en rán, tek það svo bara fram aftur svo það valdi ekki misskilningi að mér finnst ekkert mál að borga hraðasekt ef maður er tekinn fyrir slíkt.
p.s. sennilega fór þetta þó aðallega í taugarnar á mér af því að þessi blessaði starfsmaður var svo augljóslega illa greindarskertur að það hálfa hefði verið hræðilegt

