alltaf lærir maður eitthvað nýtt !

Hér skal spjalla um BMW.

alltaf lærir maður eitthvað nýtt !

Postby morgvin » Sat 26. Apr 2003 14:47

Hvernig er sótt um endurnýjun á ökuskírteini ?


Hægt er að sækja um endurnýjun ökuskírteini hjá öllum lögreglustjórum (sýslumönnum). Það þarf að mæta á staðinn og fylla út sérstök eyðublöð þar vegna þessa.

Í ökuskírteini þarf eina nýja mynd, en ef einstaklingur á nýja mynd í ökuskírteinakerfinu, er hægt að nota hana.


Allir 65 ára og eldri þurfa að skila læknisvottorði með umsókn um endurnýjun.


Allir meiraprófshafar þurfa að skila læknisvottorði með umsókn um próf og með umsókn um endurnýjun.


tekið af logreglan.is

gott að vita að gamalmennin þurfa að skila inn læknis vottorði.
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.
User avatar
morgvin
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Location: Reykjavík(Selás)

Postby morgvin » Sat 26. Apr 2003 14:57

og þetta er meira en ég vissi, kannski ekki merkilegt en

B. Flokkur B.
Fjórhjóla fólksbifreið, skráð fyrir a.m.k. þrjá farþega en ekki fleiri en átta auk ökumanns, með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna.
Lengd bifreiðarinnar skal vera a.m.k. 3,80 m og breidd a.m.k. 1,45 m, eða eigin þyngd a.m.k. 700 kg. Bifreiðin skal gerð fyrir a.m.k. 100 km/klst hraða.
Við sæti ökukennara skal komið fyrir sérstökum fetlum, þannig að ökukennari geti, óháð nemanda, rofið aflrás og hemlað bifreiðinni. Fetlar ökumanns mega ekki virka á fetla ökukennara.
Ef bifreiðin er búin læsivörn á hemlum, spólvörn eða hallahemli skal hafa rofa fyrir þann búnað.
Ef bifreiðin er búin sjálfskiptingu skal gírstöng koma í stað fetils til þess að rjúfa aflrás, og komið þannig fyrir að ökukennari geti stjórnað henni.
Bifreiðin skal búin baksýnisspegli fyrir ökumann á hægri hlið og eftirtöldum speglum fyrir ökukennara:
a. Baksýnisspegli inni í bifreið.
b. Flötum augnspegli til að fylgjast með athygli nemanda.
c. Kúptum baksýnisspegli á hægri hlið.
Stýri bifreiðarinnar skal vera vinstra megin.

tekið af dóms og kirkjumála vefnum,

Ekki tók minn ökukennari spólvörnina af hjá sér.
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.
User avatar
morgvin
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Location: Reykjavík(Selás)

Postby oskard » Sat 26. Apr 2003 15:05

segir ekkert um að hann þurfi að taka hana af þarna bara að
það þarf að vera rofi til að hafa möguleikann fyrir hendi.
oskard
 


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 36 guests