Góð þjónusta hjá BJB!

Hér skal spjalla um BMW.

Góð þjónusta hjá BJB!

Postby Logi » Tue 25. Mar 2003 09:09

Það var farið að pústa hressilega út með aftasta kútnum, þannig að ég ákvað að gera eitthvað í því. Talaði við B&L og þar sem aftasti og miðjukúturinn eru fastir saman í einu stykki reyndist þetta kosta svolítið hjá þeim, eða ca. 150.000. Ég ákvað því að ath. hvað annað væri í boði.

Eftir nokkrar símhringingar komst ég að því að það virðast ekki margir framleiða púst undir M5 (reyndar fann ég engann!)

Ég ákvað að tala við þá í pústþjónustu BJB í Hafnarfirði. Fór með bílinn til þeirra klukkan rúmlega átta einn morgun í síðustu viku og einum og hálfum tíma síðan var búið að gera eftirfarandi:

Taka pústið í sundur fyrir framan aftasta kútinn. Taka stútana af original kútnum og sjóða þá á sitthvora túbuna. Festa túburnar saman og smíða rör á milli túbnanna (skrítið orð, held þetta sé samt rétt) og pústkerfisins, ca 30 cm.

Heildarverð: 15.850 kr.

Ég var bara mjög sáttur við þetta og það heyrist ekkert mjög hátt í bílnum á eftir. Allaveg töluvert lægra en á meðan ónýti kúturinn var undir!
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby Jói » Tue 25. Mar 2003 09:14

Ég hef farið til þeirra tvisvar sinnum og þeir eru með fína þjónustu og alls ekki dýrir. Get alveg mælt með þessum gaurum.
Jói
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 342
Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Location: Reykjavík

Postby Gunni » Tue 25. Mar 2003 09:14

Já þeir eru algjörir snillingar. Ég fór þangað með bílinn minn, og ég mun fara aftur þangað þegar það þarf eitthvað að gera!

en 150.000 kall fyrir púst. það er svolítið svert verð :evil:
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Logi » Tue 25. Mar 2003 10:26

150.000 kall fyrir púst. það er svolítið svert verð


Það finnst mér líka! Þeir geta kannski leyft sér þetta ef enginn annar framleiðir púst undir svona bíla?
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby oskard » Tue 25. Mar 2003 10:35

ég hef alltaf látið gera við púst þar og þeir eru rosalega liðlegir
og þægilegir, ekkert nema gott um þá að segja. :D
oskard
 

Postby Dr. E31 » Tue 25. Mar 2003 13:28

Já þeir eru mjög liðlegir og þægilegir, ég fór með Capri'inn minn og lét smíða heilt tvöfallt pústkerfi, það tók hálfan dag eða svo, og var mjög vel gert, ekkert "redd" eða svoleiðis. Kostaði 40.000.
User avatar
Dr. E31
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1898
Joined: Wed 11. Sep 2002 01:19
Location: Reykjavík

Postby íbbi » Tue 25. Mar 2003 14:25

þeir ætluðu einu sinni að smíða undir mustang sem ég átti, með kútum og allur pakkin á einhvern 20kall,

ég hef nokkrum sinnum farið með bíla þangað.. frábær þjónusta og vinnbrögð..
"Drive it like you stole it!"
Maxima Qx v6.
User avatar
íbbi
Kassabílstjóri
 
Posts: 185
Joined: Sat 26. Oct 2002 19:51

Postby Halli » Tue 25. Mar 2003 14:34

ég bendi öllum mínum kúnum að fara þangað ef pústið er
ónýt borga sig ekki fyrir mig að gera þetta
Corvette c5
Bmw 330i
Halli
Getawaybílstjóri
 
Posts: 995
Joined: Sat 26. Oct 2002 14:07
Location: Reykjavík

Postby Haffi » Tue 25. Mar 2003 14:59

Ég fer alltaf í BJB í hfj. lét smíða nýtt púst undir bílinn minn nýlega þar sem að hitt var soldið silenced og hljóðkúturinn vel barinn til (einhver bakkað uppá kannt eða stein) urrr !
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby saemi » Tue 25. Mar 2003 15:19

Topp þjónusta og verð. Fínir gæjar.

Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 41 guests