Jæja þá er þetta komið endanlega. Bjórsamkoman verður 7. marz á Glaumbar. Það var tekin ákvörðun að hafa þetta þannig að menn borgi sig inn (1500 krónur) og fyrir það verður keyptur bjórkútur (eða 2 eftir því hvað margir mæta) og það verður einnig snakk á borðum fyrir munchara
. Það er skjávarpi þarna sem við höfum til afnota þannig að við getum horft á einhver hressandi bílavídjó. Það er ekki aldurstakmark þarna inn fyrr en klukkan hálf 12, þannig að það geta allir mætt!
Eftir að kúturinn klárast þá bjóða þeir okkur hin fínustu tilboð á veigum, Stór á 350, stór+skot 600, einfaldur 500, tvöfaldur 900.
Þeir sem ætla að mæta verða að leggja 1500 kr. inn á reikning:
RN. 1135-05-401555 KT. 241082-4239
Og skrifið í skýringu fullt nafn. gott væri ef þið munduð einnig senda mér línu
gunni@bmwkraftur.com því til staðfestingar. Það er alltílagi ef þið getið ekki borgað fyrr en eftir mánaðarmót, bara ekki draga það alveg fram á síðasta dag. ég þarf nebblega að borga bjórinn og snakkið fyrir kvöldið skiljiði
Ef það vakna einhverjar spurningar í kringum þetta getiði haft samband við mig í emaili eða í síma 822-2244.
Ég vona bara að sem flestir mæti og verði hressir og sötri bjór, því það hressir mikið mikið!
Bjór kveðjur, Gunni