Sælir, við höfum ákveðið að stefna á rúnt+grill Sunnudaginn 21 júlí
Við hittumst á bílaplaninu hjá gamla BogL við grjótháls. Mæting er kl 17:30 og verður lagt af stað á slaginu 18:10.
Leiðin liggur út úr bænum á suðurlandsveg og beygt af honum inn á nesjavelli og keyrt að þingvallaveginum þaðan liggur leiðin að þingvöllum og að svæði með útigrilli þar sem krafturinn býður í Grillaðar slöngur með kartöflusalati og öllum pakkanum, svo prins póló í eftirrétt!, og að sjálfsögðu kók með, gerum ráð fyrir allaveganna 2 pulsum á mann svo allir verði saddir!.
Ef veður verður til leiðinda þennan dag þá tökum við Fimmtudaginn 25 Júlí til vara.
Vonast til að sjá sem flesta!
Endilega melda sig á listann þeir sem ætla að mæta svo við vitum hvað þarf að reikna með miklum mat.
Þeir sem eru ekki greiðandi meðlimir borga 500kr fyrir matinn þannig að muna eftir félagsskírteininu.
1. Mazi + 1 (E30 M3)
2.
3.
......
______________________________________
Við leggjum af stað á slaginu 18:10 menn hafa þá smá tíma til koma sér til okkar.
Hér er kort af leiðinni sem verður farin.
Og svo stoppum við á tjaldsvæðinu sem kallast leirar.. það skiptist í tvennt, við veljum bara það sem minna af fólki er á.
Beygjum sem sagt af þingvallaveginum þar sem þjónustumiðstöðin er og í áttina að peningagjá og þar.
Spurning hvernig heimrúnturinn verður svo. Það er t.d mjög skemmtilegt að fara kringum vatnið og í gegnum grímsnes og upp hellisheiðina.. en menn ráða náttúrulega hvaða leið þeir ætla til baka en þetta er skemmtileg leið til keyra til baka.