JonFreyr wrote:
Vitlaus tengdur
Það var það sem ég hugsaði, en þetta er ekki beint eldflaugaverkfræði, samt...
Mælirinn er með 5 tengjum.
+ fyrir Switched power
- Jörð
S Signal
Pera
Pera
Skynjarinn er bara með 1 tengi.
Þess vegna skil ég ekki hvernig það er hægt að klúðra þessu. mig grunar ósamstæðan skynjara og mæli.. en ég mun glaður taka á mig einföld mistök ef það verður til að laga þetta.
En.. að bílnum. Ég lét hann ganga í morgun um 15mín í lausagangi fyrir utan heima (nágrönnunum til mikillar ánægju (enda klukkan 6.45)). Tékkaði vatnið og það var enn nóg í forðabúrinu, prufaði að rev-a bílinn og þá kom vatn úr yfirfallinu á vatnskassanum upp í resorvoir sem segir mér allavega að vatnsdælan sé að virka. Tappinn fór þá á og ég keyrði smá spöl. Tók aðeins á bílnum, lét hann kólna í 1klst og athugaði með þrýsting, allar hosur eins mjúkar og þær geta orðið (enginn þrýstingur). Setti aftur í gang, hitaði upp, keyrði um 5km og tók aftur á bílnum upp í uþb 12psi. Stoppaði, tékkaði hosurnar og þær vour orðnar aðeins stífari, en engan vegin þrútnar eins og fyrir síðustu aðgerð.
Vonandi er þetta komið í lag...