Sælir,
er búinn að skoða þetta spjallborð í nokkurn tíma en aldrei byrjað að pósta af einhverju viti.
Keypti minn fyrsta BMW og jafnframt minn fyrsta bíl í lok apríl og sé alls ekki eftir því.
Um er að ræða 318i e46, framleiddur í maí '02 að mig minnir og fluttur beint til Íslands, nýr.
Ekinn 78000km og í flottu ásigkomulagi, er hrikalega ánægður með þennan bíl,
þokkalegur kraftur í honum fyrir mig(nýja vélin, 2L tæp 150 hö), dugar allavega núna, handling og keyrsla bara fáránlega þægileg og góð og bara frábær bíll.
Með honum fylgdu sumardekk á 17" AEZ álfelgum sem voru orðnar ansi sjúskaður svo ég lét pólýhúða þær og er það eina "moddið" mitt ef svo skal tekið til orða, hingað til. Vantar að vísu felgumiðjur, gömlu orðnar ljótar, ætla að panta mér BMW stickers á þetta af eBay.
Á dagskránni er að splæsa e90 ugga á hann, lip spoiler á skottið, AUX plug-in og filmur. (Verð víst að gera það fyrir sunnan, enginn á Akureyri sem vill filma bílinn). M-Tech stuðari??
Hér koma nokkrar myndir,
Tekin í dag, 15.05.09 í blíðviðrinu á Akureyri.
Sumardekk og felga, fyrir viku síðan, í alvöru þá var snjór.
Ný mynd, 16. ág 2010