Svona þannig að ég reyni að útskýra hvernig kerfið hjá X sá Mafinn þá er kanski hægt að ýmynda sér að orginal BMW MAF vinni á dálkum A-F og röðum 1 - 25.
Við það að þrýsta lofti inn á bílinn og taka inn meira bensín var hann að Idle-a í röð t.d. 5 en var kominn í röð 25 við 6000rpm og því hættur að virka fyrir ofan það. Það var vandamálið sem við stríddum við.
Porsche Mafinn vinnur standard á röð 5-30 og nær því öllu range-inu sem ég þarf.
Forritið hjá X sagði s.s. að það væru nokkrar "raðir" ekki í notkun (raðir 1-5) og okkur vantaði akkúrat þær raðir aftanvið röð 25.
Það sem hann gerði því var að setja viðnám á signalið frá MAFinum sem færði virknissvið hans til þannig að hann fór að vinna eins og Porsche MAFinn.
Veit ekki hvort þetta útskýrir eitthvað, en allavega þá er mafinn bara að gera nákvæmlega sem hann á að gera, nema hann vinnur á öðru sviði en orginal og tölvan les svo úr því 100% rétt, enda hefur henni veri kennt að gera það með nýju prógrami á kubbnum.
Annaras veit ég lítið um þetta, en hef fengið útskýringu frá manni sem er mun færari en ég.
Þetta er allavega enn að virka, og eftir uþb 2000km akstur og þar af hörku brautarsession verður það nú bara að teljast ágætis árangur við 14psi á stock internals, er þaggi bara? Held allavega að menn væru nú almennt sáttir við þannig árangur úr tjúni.
Svo er bara spurning um að krossa fingur, tær og tungu að þetta haldi í sumar