arnibjorn wrote:
íbbi_ wrote:
ég myndi bara passa mig að breyta ekki hlutum sem er ekki hægt að breyta til baka..
Af hverju?
Þar sem þetta er númeraður bíll) þá svíður mörgum það sárt að taka orginal hjartað úr honum, þó svo að hann fái nýtt og mun betra hjarta. Svo svíður mörgum það ef ég tek grænu innréttinguna úr og sel hana, málið er bara að ef ég set í hann búr og racing stóla, þá fer orginal innréttingin væntanlega aldrei í aftur og því lítið point í að halda henni.
Málið er bara að ég hef litið á þennan bíl þannig að ég ætla ekki að selja hann, frekar hafa þetta sem ongoing verkefni. Mér líkar vel við boddýið, það hefur ágætis potential í að vera létt og lipurt. Græni liturinn er vel öðruvísi og meira að segja fólk sem fílar bílinn ekki finnst hann cool að því að hann er öðruvísi (nema að vísu konan mín sem hreinlega hatar hann
)
En minn bíll var bara ekki "sofnunareintakið". Það var búið að eiga of mikið við hann. Það var líka ein af ástæðum þess að ég keypti hann, það hefði verið leiðinlegt að "skemma" einhvern 100% OEM mola með þessum breitingum.
Annars lenti í ég í frekar furðulegu atviki áðan. Bíllinn fór að sprengja við gjöf, og í lausagangi gekk hann á 3000-4000. Að lokum dó hann og vildi ekki í gang. Þegar ég reyndi að starta honum þá startaði hann ekki. Ég beið þá í 1-2mín og reyndi að starta aftur. Þá snérist startarinn og ÞÉTTUR blár reykur kom úr pústinu og viðeigandi úrbræðslulykt án þess þó að bíllinn færi í gang. Ég reyndi að hringja í dráttarbíl og það gekk illa. Þá gafst ég upp á símanum og reyndi einu sinni enn... Viti menn, hann hrökk í gang, gekk fyrst illa, en svo bara ágætlega. Ég renndi þennan 1km niður í Arnold Kontz og talaði við Nuno stórvin minn og þjónustufulltrúa. Nuno hlustaði á lýsingarnar, reif upp húddið, reif upp öryggjaboxið og reif út hvítt relay. Bar það fagmannlega að nefinu á sér og sagði svo "aha"... this is kaput, this control the computer, we put a new and try ok?
13 evrum seinna þrusaði ég út, bíllinn gengur bara eins og eins og nýr, og ég er ekki frá því að hann sé dálítið öflugri.
Skemmtilegt hvað menn hópuðust að bílnum og gáfu "thumbs up" inni í Kontz, sá græni var líka stífbónaður og bara nokkuð sjarmerandi innan um allar nýtísku grágræjurnar.