bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

2003/2005 E85 Z4 - Snjóbíll bls. 8
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=56683
Page 2 of 9

Author:  Aron Fridrik [ Tue 22. May 2012 08:30 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

Get selt þér svona LM's undir bílinn á einn milljarð dollara

Image



Annars,, til hamingju með bílinn ! Örugglega ljúfur krúser :thup: :)

Author:  SteiniDJ [ Tue 22. May 2012 10:46 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

steini wrote:
eg er voða hrifinn af svona Z4 bílum og einmitt virkilega flottir með hörðum topp og náturulega möst að vera með flottar felgur í stíl við bílinn!

eg á kanski felgur handa þér viewtopic.php?f=2&t=56278

sendu mer bara skiló ef þú villt skoða þær einhvað og fá að máta þær undir


Þakka það nafni, en mér finnst þessar felgur vera of "smooth" fyrir Z4. Felgurnar þurfa að vera aggressive undir svona bílum. :)

En LM... Veit ekki, mér finnst það ekki eiga heima undir nýrri bílum en E36. Og þar að auki er sannleikskorn í þessu hjá þér Aron, $1.000.000.000 er ekki óraunhæft verð fyrir gang af LM í dag. :mrgreen:

Gekk frá pöntun á varahlutum í gær og er það helsta sem þarf að gera við bílinn á leiðinni til landsins. Fer í bremsuskipti nú á föstudaginn og bíllinn á tíma hjá eðalbílum fyrir restina í júní. Svo er bara að sjá hvort að maður geti gert eitthvað við þennan útvarpsmagnara!!!

Author:  Emil Örn [ Tue 22. May 2012 11:09 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

SteiniDJ wrote:
En LM... Veit ekki, mér finnst það ekki eiga heima undir nýrri bílum en E36.
Og þar að auki er sannleikskorn í þessu hjá þér Aron, $1.000.000.000 er ekki óraunhæft verð fyrir gang af LM í dag.



:hmm: :hmm:


Image

Image

Author:  SteiniDJ [ Tue 22. May 2012 11:43 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

Ekki fan á þessu undir E39, finnst eitthvað off við þetta þar þrátt fyrir að bíllinn beri þær ágætlega.

En E39 er auðvitað bíll frá 96 og dettur inn í E36 tímabilið að hluta. :)

Vil ekki að menn lesi úr þessu að mér þyki þetta vera ljótt, það er fjarri sannleikanum. Finnst þetta bara ekki passa saman, sérstaklega ekki á E92.

Author:  tinni77 [ Tue 22. May 2012 12:29 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

Fara í 4 lug, bottlecaps og M-techfjöðrun, hafa þetta eins ógeðslegt og hægt er að hafa það :thup:


Annars flottur bíll gamli ;)

Author:  bErio [ Tue 22. May 2012 13:15 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

Gamliiii
Image

Image

Kosta reyndar vel yfir hálfvirði bílsins

Author:  SteiniDJ [ Tue 22. May 2012 14:17 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

Það er margt annað sem má gera við bílinn áður en felgur fyrir hálfa milljón+ eru verslaðar á hann. :lol:

Author:  agustingig [ Tue 22. May 2012 14:20 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

Flottur hjá þér steini :thup: Hlakkar til að sjá hann oem-aðann :wink:

Author:  IngóJP [ Tue 22. May 2012 18:14 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

Vel valið :thup: Langar sjálfum rosalega í svona Z4. Myndi skoða OEM Z4 M felgurnar

Þessi verður flottur

Author:  SteiniDJ [ Tue 22. May 2012 19:00 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

Takk fyrir það! Z4 M felgurnar eru rosalega fallegar, en ég held að hinir kostirnir komi betur út!

Annars var ég að rífa útvarpsmagnarann úr...

Image

Held að hann sé kaput. :lol2: En, ætla að opna hann og sjá hvað er hægt að gera við þetta. Er það samt ekki nánast öruggt að hann sé ónýtur þegar þeir eru orðnir svona slæmir?

Author:  tolliii [ Wed 23. May 2012 02:32 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

Flottuuur :D en þessar felgur verða að fjúka, sem fyrst!

Author:  Zed III [ Wed 23. May 2012 10:57 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

nice, very nice.

Author:  SteiniDJ [ Wed 23. May 2012 14:06 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

Engar áhyggjur, felgurnar munu fjúka einn daginn! :)

En hér er það sem ég er búinn að panta í bílinn sem verður sett í fljótlega hjá snillingunum í Eðalbílum:

  • Viftureim
  • Spyrnur að framan (V & H)
  • Fóðringar að framan (V & H)
  • Ballansstangarendar að framan (V & H)
  • Gormar að aftan

Ásamt þessu verður ráðist í bremsur. Eftir þessi atriði er komið að dýrari hlutum sem varla mætti telja sem slithluti. Sem dæmi þá nefni ég belt tensioner, PDC skynjara, pakkningu undir olíuhúsi, blæjumótor og útvarpsmagnari. En eftir listann hér f. ofan, þá verður hann orðinn þéttur og má hitt mjakast inn hægt og rólega!

Svo er það fyrsta moddið!!! Þessi skratti er á leið til landsins as we speak og mun koma í staðinn fyrir þetta huge AM loftnet sem engin þörf er á:

Image

Big spender hér á ferð hvað mod varðar... :lol: En oft eru það litlu hlutirnir sem gera einmitt svo mikið!

Author:  fart [ Wed 23. May 2012 14:12 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

Orginal Z4 felgurnar, eins og Þröstur var með undir sínum svarta, finnst mér mjög flottar undir þessum

Author:  SteiniDJ [ Wed 23. May 2012 14:25 ]
Post subject:  Re: 2003/2005 E85 Z4

Image

Style 108 eða 107, ef ég man rétt. Þetta eru einmitt felgurnar sem ég er mest spenntur fyrir, en það eru samt 2 aðrir svartir sem eru á einmitt þessum felgum og væri gaman að þessi myndi skera sig út frá þeim hóp. Langar líka mikið í 5 spoke OEM felgurnar eins og þær sem sjást hér:

Image

Page 2 of 9 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/