Hæ.
ég átti gráan bmw 318 ssk sem var mikið ryðgaður, keypti mér svo hvítan 316 bsk minna ryðgaður og seldi svo gráa áðan.
um er að ræða:
bmw e36
1.6 lítra vél beinskipt
ekinn í kringum 150þúsund km.
hvítur að lit
4 hurðar
appelsínugul stefnuljós og að aftan var appelsínugult
tauinnrétting í mjög góðu standi
4stálfelgur og 4 dekk á þeim og 4 hjólkoppar
þegar ég kaupi bílinn þá er hann búinn að standa undir stóru tré í 2 eða 3 ár og já hann var ógeðslegur, farinn að vaxa mosi hér og þar og húddið var ekki hvítt heldur einhver litur sem ég kann ekki að útskýra.
myndir:
svo þreif ég hann svona þokkalega vel og lengiiiiii og þá var allavega hægt að horfa á hann :
svo skipti ég um afturljós, átti sona glær/clear taillights blabla
svo skipti ég um framljós sem eru með angel eyes en þau eru of stór þannig þau sjást illa, er búinn að panta önnur af netinu sem koma í næstu viku.
setti líka glær stefnuljós að framan og í frambrettin.
svo var bara byrjað að pússa og dunda
tók svo hurð af
þvoði vel, pússaði ryð og grunnaði
gæða myndefni ég veit...
grunnaði í það sem ég hafði pússað
drakk nokkra bjóra, leiddist :
er ekki búinn að gera meira, en það kemur að því fyrr en síðar, er upptekinn maður í skóla og æfa handbolta og þjálfa og er líka á lausu.
planið er svo að gera hann fallegan fyrir sumarið:
glær stefnuljós að framan og í frambrettum
[Búinn]clean afturljós (glær&rauð s.s.)
[Búinn]angel eyes í framljós (búnað kaupa önnur(6k), þessi voru í e46)
næstum Búinn]xenon 6k í aðalljós
sprauta krómið í framljósum svart
svört nýru
coilovers
[Búinn]///m framstuðari
felgur - bbs rx 17"
[Búinn]dekk á felgur
leður
svartur toppur
filmur
og fleira smotterí sem öllum er sama um nema mér.
og auðvitað aðalmálið....klára pússa niður og heilsprauta hvítan, filma toppinn svartan og skoða hvernig það kemur út.
myndir:
coilover settið.
fallegu afturljósin
BBS RX felgurnar
Fæ svo ///M framstuðarann um helgina hendi inn mynd þá.
Nokkrar spurningar:
Litur á felgunum við bílinn sem VERÐUR hvítur ???og nei þær verða ekki svartar, langar í sjaldgæfan en flottan lit sem fer bilnum vel.
nei ég ætla ekki að kaupa stærri vél eða fara í turbo þar sem ég kann ekki, nenni ekki og á ekki mikinn pening
og ég verð ógeðslega lengi að þessu þar sem ég hef lítinn tíma en lofa því að hann verður klár í apríl/maí.
Annars feel free to comment, skoðanir og hvad ykkur finnst að mætti betur fara ofl.
jólakveðja, Bjarki