og rifin byrjuð
Mælaborð, listar, stólar og fullt komið úr
Hellingur komið úr bílnum
Allt komið innanúr honum nánast sem á að fara úr, gólfið verður málað slípað almennilega og málað á næstu dögum.
allt tekið úr hurðafölsum
___________________________
Þetta er listinn ofaná gluggastykkinu kominn af, hann var smelltur niður, brotnuðu tvær smellur á honum ætla að panta allar smellurnar á þenann lista nýjar í IH
(partanúmer: 51711937638)Þetta er þéttikanntur sem var undir listanum á gluggastykkinu, hann er óttalega morkinn og slappur svo ég þarf að panta hann finn bara ekkert partanúmer fyrir hann á realoem.
Skelin í heild sinni núna,
(á bara eftir að rífa fram og afturrúðuna úr)
Svo byrjuðu þrifin á öllum boddý hlutum (þreif stuðarana, bretti, sílsa og allt að utan og innan hátt og lágt!
Undir skítnum innaní framstuðaranum kom þetta krot í ljós, skil ekki hvað stendur þarna
Svo first allt var komið af skelinni þá græjaði ég holrúmsryðvörn innaní sílsana sem nýbúið er að sjóða í
suðurnar og nýji hlutinn af sílsanum vel út drullaður ásamt öðru þarna í kring.
núna fer allt dótið bara til Árna og hann byrjar að undirvinna það og græja og fær svo skelina eftir sirka mánuð þegar ég er búinn að þrífa hana alla upp og laga til og allt verður þá grunnað í einu.
fór svo með mestmegnið af innréttinguni heim svo hún skemmist ekki þarna uppí skúr
Kom afturbekknum, hurðaspjöldum og ýmsu fyrir í fataskáp sem er ekki í notkun
Svarti toppurinn náðist stráheill úr,
strauk aðeins af honum áður en ég gekk frá honum
Stólarnir flottir
fleiri updates á næstu dögum
Kv, Már