bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW e46 318i '02 - M-Tech II > Jólabón p. 7
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=37303
Page 3 of 8

Author:  DoriSig [ Wed 02. Dec 2009 21:59 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (myndaveisla bls. 2)

Quote:
Image


verður að redda þér krafts númerarömmum, agalegt að sjá frumherja þarna :D

en Glæsikerra þarna á ferð :D og sæll á snjónum þarna:O gaman að skafa haha?

Author:  Andri Fannar [ Thu 14. Jan 2010 14:05 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (uppfærsla bls. 3 plús myndasyrpa)

Núna hefur bíllinn verið í smá prógrami.

Búinn í jólabóninu. 8)
Image

Svakalegur snjór hérna, daginn eftir jólabónið. Kom mér mjög á óvart hvað bíllinn höndlar snjóinn vel, er með Michelin X-Ice North 225/45/17, virkilega ánægður með þau. Var samt nóg að gera hjá spól- og skriðvörninni á þessum tíma, neita því ekki.
Image

Milli jóla og nýárs var hann síðan gerður klár í 10 skoðunina;
jón mar hér á spjallinu sá um bremsurnar, spyrnuna og ballansstangarendann, stóð sig vel :wink:
- Ný spyrna h/m framan
- Nýir bremsuklossar hringinn
- Handbremsan hert og stillt
- Nýr ballanstangarendi h/m framan
- Nýr skottloksopnari og listi yfir sprautaður(unitið með númeraljósunum) og ný ljós, hin voru handónýt
- Ég lét svo prenta felgumiðjur og plasta fyrir mig sem ég límdi svo á felgurnar
- Tók númeraplöturammann af að framan og setti nýjan B&L ramma að aftan, var með Frumherja :thdown:

Næst á dagskrá hjá mér er iPhone/iPod tenging inn í bíl, Xenon Projectors og Lip á skottið. Held að þá sé hann að verða ansi góður.


Svo hér að lokum eru myndir sem ég tók í gær af bílnum með útsýni inn Eyjafjörðinn og Súlur til hliðar. :thup:

Smá photoshop flipp á þeirri fyrstu :roll:
Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Author:  SteiniDJ [ Thu 14. Jan 2010 14:25 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (uppfærsla bls. 3 með nóóóg af myndum)

Nice. 8)

Ef ég væri þú þá myndi ég surta stefnuljósaperurnar í bílnum!

Author:  Hreiðar [ Thu 14. Jan 2010 14:30 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (uppfærsla bls. 3 með nóóóg af myndum)

SteiniDJ wrote:
Nice. 8)

Ef ég væri þú þá myndi ég surta stefnuljósaperurnar í bílnum!


Sammála! Getur líka keypt silfurlitaðar perur í b&l eða tb, reyndar aðeins dýrari, þannig ég segi bara að spreyja þetta ;)

Author:  jon mar [ Thu 14. Jan 2010 15:16 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (uppfærsla bls. 3 með nóóóg af myndum)

barasta mjög snyrtilegur bíll hjá þér í alla staði 8)

Author:  Coney [ Wed 20. Jan 2010 02:55 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (uppfærsla bls. 3 með nóóóg af myndum)

Djöfull sé ég eftir mínum :argh: Hann er orðin smekklegur hjá þér, ég fær mer annan svona kannski á næsta ári :twisted:

Author:  Andri Fannar [ Wed 20. Jan 2010 12:48 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (uppfærsla bls. 3 með nóóóg af myndum)

Coney wrote:
Djöfull sé ég eftir mínum :argh: Hann er orðin smekklegur hjá þér, ég fær mer annan svona kannski á næsta ári :twisted:


Hvar endaði þinn? Hann var mjög fallegur.

Author:  ppp [ Wed 20. Jan 2010 13:53 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (uppfærsla bls. 3 með nóóóg af myndum)

Hvernig í assgotanum heldurðu honum svona hreinum í þessu veðri? Get svo svarið það að minn verður skítugur bara á því að bakka út úr Löður í þessu vetrarsulli.

Svo ég tali nú ekki um felgurnar. Hvaða rugl er þetta. Þær eru hreinni en matargafflarnir sem ég borða af, en samt virðist þú vera einhverstaðar út í sveit.

Grrr.

Author:  Andri Fannar [ Wed 20. Jan 2010 19:28 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (uppfærsla bls. 3 með nóóóg af myndum)

ppp wrote:
Hvernig í assgotanum heldurðu honum svona hreinum í þessu veðri? Get svo svarið það að minn verður skítugur bara á því að bakka út úr Löður í þessu vetrarsulli.

Svo ég tali nú ekki um felgurnar. Hvaða rugl er þetta. Þær eru hreinni en matargafflarnir sem ég borða af, en samt virðist þú vera einhverstaðar út í sveit.

Grrr.


Hehe, gaman að þessu commenti - ég þoli ekki að hafa bílinn skítugan :oops:

Lítið mál að halda honum hreinum þegar veðrið er eins og það var þarna, það var nýbúið að vera slabb og ógeð en götur orðnar auðar og svo frysti og þá er náttúrulega varla neitt sem getur gert bílinn skítugan. Engir pollar og ekkert sem skvettist á bílinn.

Felgurnar voru pólýhúðaðar í vor og húðin er alveg frábær, ef maður þvær þær reglulega þá viðhalda þær glansinu og það er ekkert mál að renna yfir þær og þvo, festist ekkert ógeð á þeim, þær eru bara smooth.

Þreif bílinn í gær og í dag er hann orðinn skítugri en hann var. Vindur og hlýtt í dag hérna og allar götur nánast einn stór pollur :argh:

Author:  Coney [ Wed 20. Jan 2010 21:04 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (uppfærsla bls. 3 með nóóóg af myndum)

Andri Fannar wrote:
Coney wrote:
Djöfull sé ég eftir mínum :argh: Hann er orðin smekklegur hjá þér, ég fær mer annan svona kannski á næsta ári :twisted:


Hvar endaði þinn? Hann var mjög fallegur.


hann er á akranesi, stelpa sem keypti hann.

Author:  reynirdavids [ Wed 20. Jan 2010 22:07 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (uppfærsla bls. 3 með nóóóg af myndum)

Þessi er reyndar orðinn virkilega smekklegur, sé hann reglulega hérna á ak..

Author:  Andri Fannar [ Mon 15. Mar 2010 15:50 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (uppfærsla bls. 3 með nóóóg af myndum

Þessi ákvað að stríða mér örlítið sl. fimmtudag. Ég hafði keyrt á ákveðinn stað og lagt bílnum þar í klukkustund og ætlaði svo að fara að keyra heim og ræsi bílinn og þá bara er eins og bíllinn hafi breyst í einhvern traktor þar sem hann hristist svo mikið.

Ég verð hálfsmeykur og finnst þetta skrýtið þar sem hann var smooth og sprækur rétt áður. Prófa að drepa á honum og kveikja aftur en enn hristist hann bara í idle og snúningurinn helst ekki stöðugur og ef ég fer í D þá hristist hann enn meira. Ég náttúrulega hef ekki hugmynd hvað er í gangi og veit ekkert hvað ég gæti gert :argh:

Ég ákvað bara að keyra rólega heim, bíllinn var líklega kraftlausari en '97 módel af Hyundai Getz og hristist fáránlega. Stutt símtal í jón mar og hann segir mér að líklega gangi bíllinn ekki á öllum sílendrunum. Um kvöldið skrúfar jón svo allt í sundur og kemst að því að eitt háspennukeflið var farið og ónýtt svo að nýtt er á leiðinni hingað og verður sett í bílinn í kvöld :thup: :thup:

Á föstudaginn var hann svo þrifinn í 10+°c blíðunni hérna á Akureyri og hér eru nokkrar iPhone myndir af því ferli :wink:

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Author:  Andri Fannar [ Sun 04. Apr 2010 22:46 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (páskabón)

Bíllinn fékk páskabónið í gær og er farinn að ganga á öllum cylendrum aftur, nýtt háspennukefli klárt.
eins og nýr :)

Svo fer að stækka sjóðurinn fyrir breytingar,
xenon, iphone tengi, uggi, lip, m-kit, afhverju er svona dót ekki gefins..úff :santa:

Nokkrar frá gærdeginum,

Image

Image

Image

Image

Author:  Hreiðar [ Mon 05. Apr 2010 22:22 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (páskabón)

Lýst vel á þennan bíl hjá þér ;) mjög clean 8) , alltaf gaman þegar maður hittir einhvern annan á netinu sem deilir sama áhugamáli (bóna). :lol: :lol:

Author:  SteiniDJ [ Tue 06. Apr 2010 18:27 ]
Post subject:  Re: BMW e46 318i '02 - (páskabón)

Er þetta plássið sem þú notar til að bóna?

Það breytir engu hversu oft ég bóna minn eða þríf, hann verður alltaf instantly skítugur ef vindáttin breytist. :thdown:

Flottur bíll annars og plönin þín hljóma solid. Ég persónulega myndi ekki fá mér ugga, en myndi ekki hika við að smella lippi á hann! Á eitt til hérna hjá mér (f. coupe), sprautað og læti, sem bíður eftir því að fara á skottið (sem bíður sprautunar).

Page 3 of 8 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/