Talandi um metnaðarleysi....
Eins og einhverjir hafa tekið eftir eftir hef ég verið að díla við smá vandamál, þ.e. að loft safnast fyrir í kælivatninu. Ég var búinn að reyna ýmislegt, t.d. skipta um vantsdælu, vatnslás, kælivatn, viftukúplingu og fleira. Það sem að ég gerði á endanum var að setja VDO Bar mæli á vatnið og þá sá ég að það var í raun við boost sem loftið byggðist upp. Þetta fór versnandi með hverri vikunni. Á endanum fór bíllinn að hita sig. Samt sem áður voru engin augljós merki um að heddpakning væri farin eins og gufa úr pústinu, vatn í olíu eða olía í kælivatni. Ég prufaði líka að gera Tee-Kay test en það er litaður vökvi sem notar til að athuga hvort að það eru exhaust gases í kælivatninu. Það test var inconclusive. Á endanum var ég orðinn hræddur við að heddið væri sprungið því að þetta ástand var mun verra eftir 30mín akstur, og því líklegt að einhver málmur væri að þenjast út og opna sprungu.
Á endanum gafst ég upp.. keyrði bíllinn inn í skúr hugsaði mig einu sinni um og reif heddið af
. Til gamans þá er þetta í fyrsta skipti sem ég tek hedd af vél.
Þá kom í ljós að MLS pakningin var brunnin í sundur á milli Cyl 1-2 og 2-3.. Sjá mynd. Heddið og blokkin virtust vera í góðu lagi en stimplarnir voru svolítið ógeðslegir.
Líklegar skýringar eru ansi margar.
1. Detonation útaf of mikilli kveikju
2. Of litlir spíssar fyrir það power sem ég var farinn að rönna
3. Ýmislegt annað...
Bíllinn var upphaflega tjúnaður miðað við 12psi áður en ég bætti við boostcontroler. Aðrar breytingar síðan þá eru nýtt airbox (OEM BMW modified), önnur kerti, Stillanlegur Fuel pressure regulator, breytt inntak fyrir túrbínur, 2.65 drifið og svo Piggybackinn (sem ég held að hafi í raun engu breytt því að bíllinn var í raun farinn að setja þrýsting á kælivatnið áður). Spíssarnir eru 440cc DEKA Siemens og ég sá að við 1bar voru þeir í 100% sem er ekki gott. Þið getið þá rétt ímyndað ykkur hvernig þetta var við 20psi.. S.s. engum um að kenna nema sjálfum mér.
Ég fór með heddið á vélaverkstæði og lét tékka á því, sem betur fer voru engar spurngur, það var planað 0.1mm og síðan hreinsuð ventlasætin, en Exhaust sætin voru aflöguð. Á meðan ég beið eftir því þreif ég stimplana og sá að það eru enginar skemmdir á þeim enda Þrykktir stimplar frá CP 8.5:1 þjappa.
Ég lét líka plana annað exhaust manifoldið en það pústaði lítillega út með Cyl 5 (og hafði gert frá upphafi).
Þar sem ég byrjaði á þessu ákvað ég að klára þetta alveg sjálfur. Það fór heljarinar tími í að ventlastilla þar sem ég á ekki „special toolið“ sem þarf, en á endanum hafðist það. Ég þarf reyndar að fara yfir ventlastillinguna þegar ásarnir fara endanlega í.
Ég var að nota Cometic MLS pakningu í standard þykkt (0.070 tommur) en ákvað að fara í OEM BMW pakningu í þetta skiptið þar sem ég vill hafa pakninguna sem veika punktinn. Ég átti reyndar Ajusa pakningu og bar hana saman við Elring pakninguna (OEM BMW) en ákvað á endanum að nota þessa frá BMW.
BMW pakningin
AJUSA pakningin
Auk þess er ég að uppfæra úr Regular ARP stöddum í ARP2000
Það verður fleira gert öðruvísi í þessari uppfærslu. Ég ætla að vefja bæði downpipes með svörtum vafningi, setja hitavarnarlímplötur á innrabrettið og kjálkann og einnig undir Airboxið.
Af öðrum breytingum fara nýir RC 750cc flowmatchaðir spíssar í bílinn og standalone knock-detector.
Hitaskjöldurinn og vafningarnir klárir, svo er spurning hvort þetta gerir eitthvað
Þar sem ég er einn að standa í þessu og ég þurfti að setja heddið niður með manifoldunum á (allavega aftara) + Turbos og dowpipes, var nokkuð ljóst að þetta væri of þungt til að geta gert þetta sjálfur án einhverskonar aðstoðar. Þess vegna var stokkið til og keyptur Vélagálgi.
Kraninn í test-fitti, kom í ljóst að ég gat ekki haft bæði manifoldin á og þurfti að taka fremra af.
Svo var þessu slakað niður.. sem var ekkert sérstaklega auðvelt og ég hefði alveg getað notað auka hendur og einhverja þekkingu.. en þetta hafðist á endanum.
Blokkin klár og bíður eftir heddinu
Heddið komið á!
Illa sáttur með að hafa komið þessu á!!!!!!!
Svo voru ARP‘s þræddir í og byrjað að torque-a
Ég ætla rétt að vona að ég hafi ekki gleymt einhverju. Anyway... ARP segir að þetta eigi að vera Torqued á 105feet-lbs sem eru einhverjir 142nm og það er bara hellingur. Þessari tölu á að ná í 3mur herslum. Ég byrjaði því í 40nm og fór tvisvar yfir þá herslu, fór svo í 70nm, svo í 100nm og núna er ég kominn í 143nm. Ég ætla að renna yfir þetta aftur á morgun áður en ég set ásana í. Vonandi er í lagi að gera þetta í 4 skrefum þó svo að ARP hafi sagt 3.
ITB‘s in place!
Vatnslásinn kominn á sinn stað, ICV og ýmsar slöngur tengdar, olia inn og út á túrbos, downpipes tengdar við púst, inntak tengt á túrbínur, charge-pipes tengdar við intercoolerinn og fuel-rail komið í. Ég ætla að halda 440cc spíssunum þangað til að þetta fer í gang og skipta svo þannig að ég sé ekki að auka á óvissuþættina.
Ég kemst eiginlega ekki lengra í dag.
Á morgun fara ásarnir í, ég renni yfir ventlastillinguna aftur, Vanosið í, Vatnskassi, vifta og Airboxið... olía á og vatn.. nýju Denso Iridium kertin og svo bara brúm brúm.. eða svona c.a.
Update á morgun..