Smá update í tilefni af því að ég er búinn að eiga þennan í 3 ár.
Ég lét laga tjónið um áramótin og það heppnaðist bara ágætlega fyrir utan litamismun, sem verður lagaður í næstu eða þarnæstu viku.
Síðan hann var tjúnaður hef ég smám saman aukið boostið, sem er líklega ekkert sérstaklega gáfulegt þar sem að bíllinn er tjúnaður við mild 12psi. Auk þess hef ég skipt um Airbox, breytt inntaki fyrir turbínur, breytt pípulögn, skipt um FPR (úr oem í stillanlegan) og farið úr NGK 9 range kertum í 10 range og svo niður í 8 range aftur þar sem að þessi nr 10 voru alltof köld.
Ég tók mig líka til og málaði ventlalokið þegar ég skipti um og þétti ventlalokspakninguna um daginn.
Það sem er fyrirliggjandi er líklega re-tune og jafnvel að skipta um heddpakningu/heddstödda (í ARP2000) þar sem að mér finnst líklegt að það sé eitthvað af exhaust gases að fara út með pakningu og inn í kælivatnið.
Svo stendur til að láta polyhúða RC felgurnar hvítar þar sem að ég er alveg að fíla lookið þannig.
Anyway.. nokkrar myndir eftir þrif dagsins, bíllinn er í Wintermode á 225/40-18 Nexen vetrardekkjum á RC felgunum. En mynd af ABE/TUeV viðurkennda skoðurnarstýrinu mínu (alcantara Momo rallystýrið er ólöglegt) og svo 3 bílskúrsperramyndir.