The never ending story.... fann loksins út úr því af hverju hann var að prumpa á low rpm og gekk pínu lean í low rpm í venjulegum akstri. Ég hefði tengt orginal O2 skynjara í pústinu (annan þeirra) til að prufa og hreinlega gleymt því. Að vísu orsakaði það að bíllinn gekk á Lambda 1.0 í lausagangi og var í kringum 1.0 í venjulegum aksri, jafnvel aðeins yfir. Það þýðir í raun að þetta er súper gott skoðurnarmodd sem kemur sér vel því að ég er kominn með TUV loforð frá einum traustum.
En....... ekki er allt gott samt... Var að keyra í vinnuna aðan og bíllinn orðinn heitur og fínn (enda 23°c kl 7 í morgun) og ég ákvað að taka smá WOT rönn upp brekku. Svörunin var góð, ekkert delay á low-rpm eins og var áður með O2 skynjarann tengdan, bíllinn revar upp alveg svakalega, mega power og hávaði og svo BOOOOOOMMMM. Í þetta skiptið var þetta öðruvísi boom heldur en þegar hosurnar springa af því það er mjög sérstakt boom. Þetta var mun meira mechanical, ég skipti upp og gaf bensín og bíllinn bara kokaði og AFT fór niður úr öllu valdi. Greinilegt að eitthvað mega hafði gerst
Sem betur fer var ég ekki á hraðbrautinni þannig að ég náði að fara út í kant, opnaði húddið og skoðaði allar hosur, sem mér til mikillar undrunar voru allar á sínum stað
. Ég aftengdi þá MAF og setti í gang... gekk fínt
en dálítið ríkur. (Lambda 0.80). Ég skoðaði og skoðaði en sá ekkert laust eða ekkert greinilegt af þessu sem maður grunar venjulega. Svo prufaði ég að reva bílinn og hlusta og þá heyrðist greinilega í throttle bodys...
og þá sá ég hvað var að..
Gæðasmíð Mert hafði sprungið í tætlur og samt sá ég bara 17psi á max boost á skjánum.
Þá er það bara að reyna að komast upp úr bílakjallaranum í bankanum á eftir og truntast heim þar sem að BMW airboxið fer í.