Fór og tók nokkra hringi í gær á Slaufunni, það var þurrt 2/3 af brautinn en blautt og sleipt restina.
Þórður kom með einn hring og sagði mér til.
Bíllinn undirstýrir EKKERT og gripið er ógurlegt miðað við þegar ég var með venjulegu dekkin.
Fjöðrunin virkar vel, hugsanlega spurning um að stífa jafnvægisstangirnar aðeins, og ég er nokkuð viss um að X-braceið sé að gera sitt.
Það er samt eitt mega pirrandi og það er að framdekkin rekast upp í brettin (ekki linerana) í heavy cornering og mishæðum. Ástæðurnar eru nokkrar.
1. 235/40-18 Toyo R888 virðast vera örlítið belgmeiri en "venjuleg" dekk
2. felgurnar eru ET38 til að clear-a bremsudælurnar
3. hugsanlega er bíllinn aðeins of lágur að framan (lítið mál að bjarga Því
)
Það sá nokkuð á dekkinu bílstjóramegin að framan eftir átökin og nokkuð ljóst að það þarf að gera eitthvað. Líklega byrja ég á því að hækka hann upp um c.a. 5-8mm það ætti að muna. Svo er ég búinn að leggja inn pöntun á stillanlegar Camber/caster plötur. örlítill negative camber gæti gert gæfumuninn, því þá fara dekkin innundir í brettið.
Neyðarúrræði væri að láta tosa brettin aðeins út.
Svo er síðasti möguleikinn er að runna 225/40-18 all-round, eða að framan til að byrja með. Helst vill ég hafa all-round sama til að geta róterað. Gripið að aftan er það mikið að ég held að 1cm myndi ekki muna öllu.
225/40 + smá negative camber gæti bara alveg verið málið.
Ég er síðan búinn að panta nokkra hluti, og sýni myndir af því þegar það verður komið í.
p.s. týndi bremsukælingar-duct-i í gær, lítill skaði s.s. en ein afleiðing klessunar í þarsíðustu ferð.