Smá update á þennan.
2.65 drifið gerbreytir bílnum. Núna get ég krúsað um á mun lægri snúning á hraðbrautinni sem er mikill munur þar sem að bíllinn er minn daily driver. Hann "pullar" vel í öllum gírum, það verður gaman að taka 100-200 rönn í 4. gír, reyni það fljótlega.
Recaro Pole Position sætin eru líka miklu þægilegri en þau sem ég var með. Líklega er betri svampur í þeim auk þess sem að þau eru 2cm víðari yfir mjaðmirnar en það er mikill kostur þegar maður er að keyra í jakkafötunum.
Um helgina reif ég OEM BMW airboxið aftur af og grunur minn var á rökum reistur. Það vantaði O-hringina á milli throttle bodys og intakslúðrana. Ég setti ívið þykkari O-hringi en BMW mælir með útaf boostinu. Annað mál var að ég áttaði mig ekki á því að trompetin eru mismunandi. Það er eitt partanúmer fyrir Cyl 1 og 3, annað fyrir 2-4-6 og svo þriðja fyrir cyl 5. Cyl 5 er sá sem hýsir bracketið fyrir bensíngjöfina en í grunninn er það eins og það sem er fyrir 1 og 3. Þegar ég bar þetta saman sá ég að þau eru dálítið öðruvísi í laginu. Fyrir þetta gekk bíllinn frekar "lean" eða í Lambda 1.1 til 1.16 í lausagangi og var líka yfir 1.0 í rólegum akstri. Núna mallar hann ljúft í 700rpm Lambda 1.0 í lausagangi og er í fullkomnu 1.0 í velnjulegum akstri. Low-endið virðist hafa lagast, en það gæti líka verið nett placibo effect. Í raun veit maður ekkert hvort þetta gerir eitthvað, ætli næsta uppsveifla verði ekki notuð í að kaupa lyftu og Dyno í skúrinn
Bíllinn virðist ekkert hafa laskast við útafaksturinn á SPA enda s.s. bara möl. Eina sem sér á eru hvítu felgurnar, en ætli þær verði ekki polyhúðaðar fljótlega. Hvít málning er ekki alveg nógu sterkt fyrirbæri fyrir brautarakstur. En á heildina er ekki hóst né stuna fyrir utan smá olíuleka sem ég þarf að athuga hvaðan kemur, en hann virðist koma á inntakshliðinni auk þess sem að það var smávægilegur leki á ventlalokspakningu en ég held að það hafi lagast við að herða á lokinu.
Þegar við Sveinbjörn vorum að taka eitt rönnið á SpA skaust tappi úr pústinu (þar sem súrefnisskynjari er venjulega) og ég blockaði það bara með tímabundið með bolta og hosuklemmu yfir. Það verður græjað næst þegar ég nenni í bílinn.
Nú er bara að reyna að fá skoðun.. s.s. back to the old problem.