bimmer wrote:
gstuning wrote:
Það sparar manni að kunna megnið sjálfur.
Er hljómurinn á spjallinu þannig að spenda pening 12og3 í útlöndum sé aðal kickið í að breyta bílum? Hver ætli komi með dýrasta reikninginn næst?
Við hinir verðum bara að gera þetta á ódýra máttann hérna heima.
1000kall á aksturbraut eða milljón í eurotour?
Það virðist nú samt vera þannig að það skipti engu hvað er spendað, þetta bilar samt.
Held að þú sért að misskilja eitthvað.
Það eru fæstir sem geta staðið í þessu sjálfir af einhverju viti.
Ef maður ætlar síðan að fá einhvern í þetta er fátt um fína drætti hér
heima sökum reynsluleysis fyrir utan að það er ódýrara að láta gera þetta
úti þegar menn eru hvort eð er að fara að Eurotúrast (sem kostar
ekki milljón....).
Já ég held að þú hljótir að vera að misskilja þetta peningatal eitthvað Gunni minn, ég vildi allavega ekki að þetta kæmi út eins og einhver spending keppni. Ég vildi bara undirstrika það fyrir þá sem vilja fara út í svona dæmi að þetta er ekkert sérstaklega fjárhagslega skynsamlegt og skiptir þá ekkert rosalega miklu hvort að menn gera vinnuna sjálfir eða ekki. Góðir varahlutirnir og aukahlutir eru yfirleitt frekar dýrir til að byrja með, sérstaklega ef það á að flyta þá til Íslands með tilheyrandi kostnaði.
Það sem ég var svona að reyna að segja var.. þú breytir einu þá þarftu að breyta öðru. Ef ég væri ekki búinn að breyta fjöðrun mikið og bremsum slatta væri bíllinn hálf ókeyrandi með þetta afl, og með þetta afl myndi hann ekki endast lengi ef "tjúnið" væri ekki gott og ef tjúnið er gott þá endist hann hvort eða ekki lengi nema það sé komin alvöru pakning og boltar, og eftir að það kom í heldur kúplingin ekki... tiltölulega endalaus útgjöld í varahluti fyrir utan vinnuna fyrir þá sem eru ekki færir í höndunum.
Fyrir utan það geta menn síðan lennt í því að crasha á brautinni og þá bætist við brautarkostnaðurinn fyrir utan skaðan af bílnum.
En menn sníða sér að sjálfsögðu stakk eftir vexti og menn eru misvaxnir. Það að þú viljir eyða X og ég vilji eyða XX þýðir í raun ekki neitt annað en það því á endanum að við erum báðir bara að reyna að hafa gaman af þessu in our own way en það þýðir ekki að ég sé eitthvað TEAM aðilar XX og þú bara TEAM X. Við erum baðir í sama liði, TEAM FUN og þar eru allir velkomnir, enda bíllinn minn bara peace of crap miðað við marga af þeim bílum sem ég hef umgengist síðustu ár en mér er líka bara alveg sama þegar ég mæti á svæðið og bíllinn minn er álíka mikils virði og felgugangur á næsta bíl, og það fyndna er að þeir hinir gæjarnir hugsa nákvæmlega eins. Það sem er reyndar algengara er að menn hafi ákveðna fordóma gagnvart þeim sem eyða meiri pening heldur en í hina áttina. Til dæmis er litið ákveðnum "augum" á þá sem mæta á exótók upp á slaufu. "Venjulegir" menn næstum því hata þá sem mæta á 200-300þús euro bílum upp á slaufu og hreinlega vona að þeir skemmi bílana, og slíkt er náttúruega frekar hallærislegt, því að fordómarnir hjá "ríka" liðnu eru yfirleitt engir gagnvart einhverjum sem mætir svæðið í algjöru POS dollu, slíkir menn fá frekar mikið respect frá "ríka" liðinu.
Anyway... punkturinn varðandi að segja hvað þetta kostar var ekki eitthvað mont eða typpamæling heldur miklu frekar svona "víti til varnaðar" fyrir þá sem eru í svipuðum pælingum og ég og í svipaðri aðstöðu og ég að vera alveg vonlausir í höndunum.
Ég tek sjálfan mig ekkert sérstaklega hátíðlega og býð flestum ef ekki öllum kunningjum að taka hring á brautinni sbr það að ég bauð bæði Sæma Boom og Árna Sezar upp á að keyra hring ef þeir vildu, annar afþakkaði en hinn sagði já en svo vannst bara ekki tími til þess. Ingvar Bebecar t.d. nagar sig enn í handabankið yfir því að hafa neitað hring á E60M5.
Allavega .. enough money talk held ég bara.