Er með bílinn í tætlum niðri í skúr. Þarf að finna út úr því hvernig Intercooler ég nota þar sem að sá sem kemur með kittinu passar ekki í minn bíl.
Ég er búinn að browsa þetta aðeins og svo virðist sem að IC séu nú ekki svo dýrir, þannig að maður getur leyft sér að kaupa 2-3 og test fitta, og selja svo aftur það sem maður notar ekki.
Sá sem er líklegastur núna er með kjarna sem er 450x300x80 og því ágætlega stór og ætti að duga í mitt project. Ég þarf þá að vísu að fá mér 70 í 60mm hné, en það er nú ekki arm/leg peningur.
Líklega tek ég AC í burtu því að það losar mikið pláss fyrir rörin frá Turbos í IC. AC dælan er akkúrat á þeim stað sem rörin fara, allavega eins og ég sé það.
Ef ég man rétt þá kveikti ég ekki einu sinn á AC í þessum bíl síðasta sumar, sem var reyndar dálítið kaldara en sumarið 2006.
Helvítis klúður að finna ekki E36 bókina sem ég átti einhverstaðar, en líklega væri best að kaupa bara Bentleyinn, það á örugglega eftir að marg borga sig.
Ég var svona farinn að gera mér vonir um að setja þetta í sjálfur, en ég held satt best að segja að það sé algerlega glötuð hugmynd. Líklega fer bíllinn á verkstæði annan mánudag, þ.e. þegar ég veit að ég er kominn með allt sem ég þarf, og "vonandi" verður hann tilbúinn 10 feb þegar ég kem aftur frá Kanarí
BTW ef einvher veit hvort að það er ekki 100% í lagi að fjarlægja þessa Emission pump þá endilega speak up.