Já þetta var helvíti mögnuð helgi verð ég að segja.
ég ætla skrifa smá sögu það sem gerðist hjá okkur, einsog komið hefur framm áður, þá var ég og Halli félagi minn á Gull Prezunni að bóna og gera og græja til 5 um morguninn, þegar ég var á leiðinni heim mætti ég bílnum hans Stefáns og ég hélt að einhver svertingi hefði hefði stolið bínum hans svo þegar að hann opnaði gluggann kom í ljós að þetta var hann Gunni, svartur upp fyrir haus, þá var hann að fara og ná í bremsuvökva ef ég man rétt, og hugsaði með mér að hann myndi aldrei ná að klára bílinn en það tókst
Svo lögðum við af stað frá Njarðvíkursjoppu um 2 leytið þurftum að stoppa í bænum til að kaupa eitt par af talstöðvum svo að allir í lestinni gætu talað saman, það var mjög þægilegt og skemmtilegt að hafa þær á leiðinni. Við héldum 140-160km/klst mest alla leiðinna, svo þegar við vorum komin framm hjá Blönduósi þá fór maður að þyngjast í bensínfótnum og það var keyrt svoldið greiðar. Svo þegar að við áttum 10 mínútur eftir á Akureyri þá sprakk að aftan hjá mér, en sem betur fer þá var ég á 16" felgunum að aftan því að annars myndi hann rekast svo mikið í á leiðinni norður, Gunni fékk að kynnast því. En ég dreif mig að setja 18" undir og við héldum áfram. Leið og við komum á Akureyri þá kíktum við á samkomu hjá L2C og þar var þessi skemmtilega mynd tekin
svo eftir samkomuna fórum við að þrífa allsvakalega því að bílarnir okkar áttu að fara á 2Fast2Furius sýninguna niðrí bæ.
Svo var bara djammað og djúsað öll kvöld, sem var bara gaman.
Svo á heimleið var keyrt mun hægar því að ég þrufti að vera á 18" á leiðinni heim því að 16" dekkið var ónýtt
Þessi helgi var bara snilld frá A til Ö og ég ætla sko að fara næstu 10 árin
_________________
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05Alpina wrote:
M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......